Hægt væri að minnka um helming losun kvikasilfurs
Margir og ónýttir möguleikar eru á því að draga úr losun kvikasilfurs í heiminum. Með nútímatækni mætti draga um helming úr losun þess fram til ársins 2020. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Norræna ráðherranefndin og Umhverfisstofnun Danmerkur létu gera. Skýrslan var kynnt á fjölmennri málstofu sem haldin var á þriðjudag á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kvikasilfur í Stokkhólmi.
Fjölmargir kostir, aðrir en kvikasilfur, eru nú fyrir hendi til að nota í ýmsa framleiðsluvöru og jafnframt því má með nútímatækni stuðla að því að draga úr losun frá iðnaði. Rúmlega helmingur alls þess kvikasilfurs sem losað er af mannavöldum kemur frá járniðnaði og orkuverum sem nota lífrænt brennslueldsneyti. Með því að nýta ýmsar gerðir sía í orkuver sem nýta kol við framleiðslu eða hreinsunarbúnað í járniðnaði mætti minnka losunina verulega.
Í nýju skýrslunni eru dæmi um fyrirtæki sem þróað hafa tæknilausnir, til að mynda finnska fyrirtækið Outotec. Tæknin sem Outotec þróaði til að draga úr kvikasilfurlosun frá járniðnaði er nýtt af tugum framleiðslufyrirtækja um allan heim, samtals minnkar þessi tækni kvikasilfurlosun um allt að 300 tonn á ári.
Danska ráðgjafafyrirtækið COWI gerði skýrsluna, en í henni er einnig bent á lausnir þar sem annað en kvikasilfur hentar vel, meðal annars í heilsugeiranum og við vinnslu gulls.
Sögulegi samningafundurinn í Stokkhólmi er sá fyrsti af fimm, sem miðar að því að komast að alþjóðlegu og bindandi samkomulagi um nýtingu og losun kvikasilfurs Markmiðið er að samkomulagi verði náð árið 2013. Kvikasilfurráðstefnan, sem haldin er í Stokkhólmi dagana 7. - 11.júní, er fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni og hana sækja mörg hundruð stjórnendur og sérfræðingar ásamt fulltrúm frjálsra félagasamtaka frá heiminum öllum.
