Hærri meðalaldur kallar að aukið norrænt samstarf
„Það er fagnaðarefni að lífaldur hækki á Norðurlöndum, það sýnir að þar er gott að búa og að tækifærin eru mörg, en vaxandi þörf á starfskröfum kallar á aukið norrænt samstarf.“ Þetta sagði Anne-Grete Strøm-Erichsen, heilbrigðisráðherra Noregs, á fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Foto: Berit Roald, Scanpix/Skrifstofa forsætisráðherra
„Við eigum nokkur ár upp á að hlaupa. Öldruðum á Norðurlöndum mun fjölga mest frá og með árinu 2020. Á Norðurlöndum er heilbrigðiskerfin byggð upp á svipaðan hátt og verkefnin sambærileg. Við getum ekki keypt okkur frá þessum verkefnum, en við getum lært hvert af öðru“, sagði Anne-Grete Strøm-Erichsen. Hún telur erfiðasta verkefnið vera að afla nægilegra starfskrafta til framtíðar.
„Árið 2050 þurfum við tvisvar sinnum meira starsafl en í dag. Það þýðir að við verðum að mennta fleiri og við verðum að nýta þá starfskrafta sem við höfum í dag enn betur. Við getum aukið heilbrigðisþjónustu og umönnun á Norðurlöndum með því að vinna saman að rannsóknum, tækni og stjórnsýsluverkefnum“, sagði ráðherrann.
Einn af hverjum þremur verður að mennta sig á heilbrigðissviði
„Ég tel að við munum standa okkur betur á Norðurlöndum. Samfélagsgerð okkar hvetur til fleiri fæðinga. En við stöndum samt sem áður andspænis erfiðum verkefnum. Eftir aldarfjórðung verður þriðji hver einstaklingur sem lýkur grunnskóla að fara í störf sem tengjast heilbrigðis- og umönnunarþjónustu, ef við eigum að koma til móts við þarfir íbúa“, sagði Anne-Grete Strøm-Erichsen.
„Með auknu norrænu samstarfi getum við staðið okkur betur hvað varðar heilbrigðis- og umönnunarþjónustu.“
Sænski samflokksmaður ráðherrans, Göte Wahlström lýsti ánægju með hugmyndir Anne-Grete Strøm-Erichsen og hrósaði norræna samfélagsgerðinni/velferðarlíkaninu.
„Norræna velferðarkerfið er til fyrirmyndar. Við í velferðarnefndinni munum skoða hvernig þróa megi kerfið til að ná enn lengra“, sagði Wahlström í lok fundarins með norska heilbrigðisráðherranum.
