Hættum að henda mat
Norðurlöndin eiga að sýna gott fordæmi og og koma í veg fyrir að matvöru sé hent, að mati danska þingmannsins Ole Vagn Christensen, sem einnig á sæti í Norðurlandaráði. Hann hefur því beðið norrænu ríkisstjórnirnar um yfirlit yfir matvörur sem fari til spillis og aðgerðir sem grípa má til að koma í veg fyrir það.
„Norðurlönd geta unnið saman að því sem eitt svæði að marka nýja stefnu til að koma í veg fyrir að matvöru sé hent og þar með stuðlað að umhverfisvænni lausnum. Þetta gæti jafnvel orðið „útflutningsvara“ fyrir Norðurlönd“, segir Ole Vagn Christensen.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
„Norðurlönd geta unnið saman að því sem eitt svæði að marka nýja stefnu til að koma í veg fyrir að matvöru sé hent og þar með stuðlað að umhverfisvænni lausnum. Þetta gæti jafnvel orðið „útflutningsvara“ fyrir Norðurlönd“, segir Ole Vagn Christensen.
Enn fremur má bæta orkunýtingu með því að nýta útrunna matvöru sem er mikilvægur liður í stefnumótun ESB 2020,“ segir Christensen.
Til er fjöldi gagna um matvöru sem fer til spillis í hverju landi fyrir sig og í heiminum öllum og afleiðingar sem þetta hefur í för með sér, en það lítur ekki út fyrir að þessar upplýsingar hafi leitt til aðgerða, hvorki á Norðurlöndum né annars staðar í heiminum.
Í norrænu samstarfi, hvort heldur innan ráðherranefndarinnar eða ráðsins, er lögð áhersla á loftslagsmál og orku- og umhverfisstefnu. Þetta eru málefni sem á að styrkja bæði vegna umhverfisins og heilbrigðis- og efnahagsmála. Þess vegna ætti matur, þar með talið matvara sem fer til spillis, að vera hluti að umhverfis- og loftslagsstefnu þeirra segir í bréfi Ole Vagn Christensen.
Flokkahópur jafnaðarmanna í atvinnulífsnefnd Norðurlandaráðs: Tone Sønsterud, Billy Gustafsson og Ole Vagn Christensen vinna þessa stundina að gerð fulltrúatillögu um baráttu gegn því að matvara fari til spillis á Norðurlöndum.
Tengiliðir
Kristina Aaltonen
Sími
+45 61 62 34 92
Tölvupóstur
skraa@ft.dk
Ole Vagn Christensen
Tölvupóstur
ole.christensen@ft.dk
