Ekki er nauðsynlegt að mynda norræna ráðherranefnd um varnarstefnu. Aftur á móti fagna norrænu varnarmálaráðherrarnir aukinni þingræðislegri þátttöku. Þetta segir Carl Hagelund varnarmálaráðherra Finnlands, sem fer með formennsku í NORDEFCO þetta árið.
„NORDEFCO einkennist af sveigjanlegum, óskrifræðislegum ferlum. Við eigum að halda áfram að leggja áherslu á raunsæi frekar en skriffinnsku í norrænu varnarmálasamstarfi“, sagði Hagelund á þemaþingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi á fimmtudag.
„Varnarmálaráðherrarnir reyna ekki að fela neitt og munu halda áfram að gefa þingmannasamstarfinu skýrslur í framtíðinni. Þess vegna fögnum við einnig hringborðsumræðum um varnarstefnu sem Norðurlandaráð mun standa fyrir í haust“, segir Hagelund.
Samkvæmt Hagelund vinnur NORDEFCO í augnablikinu að framtíðarsýn fyrir norrænt varnarsamstarf, sem verður tilbúin í desember.
„Farið er fögrum orðum um norrænt samstarf, en í varnarsamstarfinu höfum við einnig áorkað miklu. Flugherir okkar halda sameiginlegar æfingar nánast í hverri viku.
Varnarsamstarf Norðurlandanna snýst um fjármuni, en Hagelund hefur enn ekki tekið afstöðu til hver sparnaðurinn getur orðið.
„Dags daglega snýst samstarfið um að við fáum meira fyrir fjármagnið en við fengjum hvert fyrir sig. Við getum fyrst reiknað með raunverulegum sparnaði þegar við förum að kaupa inn sameiginlega í miklu magni“.
Heidi Orava
Sími
+45 21 71 71 48
Tölvupóstur
heor@norden.org