Hautala: Rússar undir þrýstingi í umhverfismálum vegna Nord Stream
Þrýsta mætti á Rússa að taka virkari þátt í umhverfisvernd með því að beita fyrir sig gasleiðsluverkefni þeirra Nord Stream. Þetta er skoðun Heidi Hautala sem situr á Evrópuþinginu fyrir Finnland.
Heidi Hautala
Samkvæmt Hautala veitir Nord Stream-verkefnið öðrum Eystrsaltsríkjum kost á því að þrýsta á Rússa að samþykkja mikilvæga samninga um umhverfismál Finnar gætu til dæmis krafist þess að Rússar samþykki alþjóðlegar umgengnisreglur á Eystrasalti í skiptum fyrir að fá að athafna sig í landhelginni við lagningu gasleiðslunnar.
Hautala, sem er fylgismaður græna bandalagsins, tók á föstudag þátt í málþinginu "Hvað þurfa Norðurlandabúar að vita um Rússland", sem haldið var af Norrænu stofnunni í Finnlandi (Nifin), sendiráði Noregs og finnska utanríkisráðuneytinu. Auk Hautala töluðu á málþinginu Per Egil Hegge, norskur blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Rússlands og sænski prófessorinn Klas-Göran Karlsson.
Hautala gerði einnig grein fyrir sinni sýn á samskiptum Rússa og ESB. Samkvæmt Hautala má skipa aðildarríkjum ESB niður eftir afstöðu þeirra til Rússlands. Til dæmis eru Eistland, Pólland og Svíþjóð mjög beinskeytt í umsögnum sínum um Rússland Vladimirs Putins forsætisráðherra og Dmitrij Medvedevs forseta. Aftur á móti reyna til dæmis Ítalir, Spánverjar, Þjóðverjar og Finnar að fá Rússa til að samþykkja sameiginlega evrópska stefnu án þess að gera nokkrar kröfur, segir Hautala.
Norræna stofnunin í miðborg Helsinki, hýsir jafnframt upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Finnlandi. Verkefni Nifin er að breiða út þekkingu um Norrænt samstarf í Finnlandi og kynna Finnland annars staðar á Norðurlöndum.
Tengiliðir
Gun Oker-Blom
Sími
+358 09-68 40 56 20
Tölvupóstur
gun.oker-blom@nifin.helsinki.fi
