Document Actions

Helgi Hjörvar kjörinn forseti Norðurlandaráðs

Helgi Hjörvar alþingismaður verður forseti Norðurlandaráðs. Helgi Hjörvar var kjörinn forseti Norðurlandaráðs á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi á fimmtudag. Helgi Hjörvar fæddist 1967, hann var fyrst kjörinn á Alþingi árið 2003, fyrir Samfylkinguna. Helgi varð fulltrúi í Norðurlandaráði árið 2007 og fer fyrir íslensku sendinefndinni í Norðurlandaráði árið 2009.

Helgi Hjörvar tekur við af sænska þingmanninum Sinikka Bohlin um næstu áramót en þá tekur Ísland við formennsku í Norðurlandaráði.

Verðandi forseti telur norræna samstarfið mikilvægara nú en nokkru sinni, ekki síst vegna fjármálakreppunnar. Sú staðreynd að fjöldi áhrifamikilla stjórnmálamanna eru í sendinefnd Íslands í Norðurlandaráði sýnir einnig að við viljum setja norrænt samstarf í forgang.

Helgi telur mikilvægt að Norðurlandaráð leggi áherslu á málefni sem almenningur telur mikilvæg, þar á meðal öryggismál.

Sem forseti ætlar Helgi Hjörvar meðal annars að leggja áherslu á öryggismál í víðu samhengi, í baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali, í efnahagssamstarfi og loftslagsmálum, en einnig hefðbundunum öryggismálum í samræmi við skýrslu Stoltenbergs.

Annað mikilvægt málefni að mati nýja forsetans er hafið, sjávarútvegsstefna og málefni Norðurskautsins og Eystrasaltsins. Menning og tungumál eru einnig ofarlega á baugi hjá Helga Hjörvar, svo og stjórnsýsluhindranir. Mjög persónuleg hindrun tengist blindrahundi Helga, hinum fjögurra ára labrador Herra X.

„Hann get ég ekki haft með mér á ferðalögum á Norðurlöndunum, vegna þess að ég fer aftur til Ísland og þá verður hundurinn að vera í sóttkví í mánuð", segir Helgi sem er kvæntur og á þrjár dætur.

Helgi Hjörvar nam heimspeki við Háskóla Íslands á tíunda áratugnum. Áður en hann var kosinn á þing var hann framkvæmdastjóri Blindrafélagsins og Blindravinnustofunnar 1994-1998 og Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur 1999-2002. Áhugamál Helga Hjörvars eru menningarmál, fyrst og fremst bókmenntir og leiklist, og hann hleypur mikið í íslenskri náttúru.

Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, var kjörinn varaforseti. Illugi Gunnarsson fæddist 1967. Hann tekur við af sænska þingmanninum Kent Olsson. Illugi Gunnarsson var kjörinn á þing árið 2007 og hefur verið fulltrúi í sendinefnd Íslands í Norðurlandaráði frá árinu 2009.

Illugi Gunnarsson, sem nam hagfræði í London, telur einnig að öryggismálin verði mikilvægasta málefni ársins 2010. Hann starfaði áður meðal annars sem pólitískur ráðgjafi Davíðs Oddsonar þegar hann var forsætisráðherra.

Vefsíða Helga Hjörvars á Alþingi

Vefsíða Illuga Gunnarssonar á Alþingi