Document Actions

- Hernaðarsamstarf nauðsynlegt milli Norðurlanda

Anne-Grete Strøm-Erichsen (Ap) varnarmálaráðherra Noregs sagði í umræðum um varnarmál þann 30.04.13, sem haldnar voru að frumkvæði Norðurlandaráðs, að þörf væri á sameiginlegu norrænu varnarsamstarfi. Að mati Erichsen er varnarsamstarf ekki einungis mikilvægt, heldur nauðsynlegt. Norrænu ríkisstjórnirnar vinna nú að því að þróa og efla The Nordic Defence Cooperation (NORDEFCO).

03/05 2013

Varnarmálaráðherra Noregs Anne-Grete Strøm-Erichsen (Ap)

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

„Áhugi fyrir norrænu öryggis- og varnarsamstarfi er að aukast, jafnt heima fyrir og á alþjóðavettvangi. Þetta sýnir að bæði er málefnið pólitískt mikilvægt og að okkur hefur tekist að þróa samstarf sem gengur vel og vekur áhuga einnig utan varnar- og utanríkissamstarfsins. Við verðum því að standa vörð um og þróa áfram það sveigjanlega samstarf sem á sér stað innan NORDEFCO. Ég kann að meta þá sveigjanlegu og óformlegu umræðu sem nú á sér stað milli norræna varnarsamstarfsins og Norðurlandaráðs og ég vona að við getum í sameiningu þróað umræðuna á skýran og hagkvæman hátt", sagði Anne-Grete Strøm-Erichsen.

Norðurlandaráð leiðandi í varnarsamstarfinu

Norðmenn sem nú fara með formennsku í Norðurlandaráði telja að þingmennirnir verði að leiða alþjóða- og varnarsamstarf á Norðurlöndum. Utanríkis- og öryggismál og varnarmál eru því forgangsverkefni á árinu 2013.

„Norðurlandaráð hefur í nokkur ár lagt áherslu á þátttöku þinga og tengsl þeirra við norræna varnarmálasamstarfið og þá einnig við norræna utanríkissamstarfið. Í lok september munu forsætisnefnd Norðurlandaráðs og fulltrúar varnarmálanefnda þjóðlandanna - í Noregi utanríkis- og varnarmálanefndin - taka þátt í ráðstefnu með varnarmálaráðherrum og yfirmönnum hjá NORDEFCO í Finnlandi, til að geta tekið þátt í umræðum og tekið ákvarðanir á þingi Norðurlandaráðs í Ósló n.k. haust", sagði Marit Nybakk forseti Norðurlandaráðs.

Norðurlandaráðs átti frumkvæði að umræðum í þjóðþingum Norðurlanda um norræna varnar- og öryggismálastefnu. Umræðurnar fara fram vorið og haustið 2013. Árið 2012 átti Norðurlandaráð frumkvæði að samskonar umræðum um stjórnsýsluhindranir. Niðurstöður umræðnanna urðu að tillögum frá Norðurlandaráði sem Norræna ráðherranefndin vinnur nú með.

Nánari upplýsingar hér: Umræður um varnarmál í þjóðþingum Norðurlanda 2013

NORDEFCO

The Nordic Defence Cooperation, NORDEFCO, var sett á laggirnar árið 2009 sem langtímasamstarf. NORDEFCO sameinaði og samþætti fjölda samstarfseininga um varnarmál, sem voru til en vantaði heildstæðan starfsvettvang. Innan ramma NORDEFCO vinna norrænu ríkisstjórnirnar nú að því að skoða uppbygginu samstarfsins til að tryggja bestu mögulegu umgjörð um pólitísk markmið og að árangur náist. Noregur tekur við formennsku í NORDEFO af Finnlandi árið 2014.

Tengiliðir

Frøydis Johannessen
Sími +45 21 71 71 44
Tölvupóstur frjo@norden.org