Document Actions

Hittið stjórnmálamennina og kynnið þeim hugmyndir ykkar

Almenningi gefst nú tækifæri til að taka þátt í norrænu samstarfi. Frá og með 1. janúar 2012 gefst almenningi tækifæri á að eiga fund með þingmönnum Norðurlandaráðs og segja þeim hvað þeir ættu að leggja áherslu á, eða kynna þeim skoðanir sínar á þeim málum sem eru á döfinni.

01/01 2012
Kimmo Sasi
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

„Ég bið norræna borgara um að nýta ser þetta nýja tækifæri. Beint samband borgara við þá sem taka ákvarðanirnar, mun styrkja lýðræðið og bein áhrif borgaranna. Ég mun tryggja það að allar tillögur verða skoðaðar vel," segir Kimmo Sasi, forseti Norðurlandaráðs.
 
Frá og með 1. janúar 2012 mun Norðurlandaráð innleiða áheyrnarétt, með það að markmiði að auka opna umræðu. Það þýðir að norrænir borgarar eða minni hópar allt að fimm einstaklingar geta farið fram á fundi með nefndum Norðurlandaráðs til að koma eigin skoðunum á framfæri um stefnu Norðurlandaráðs.
 
Fundirnir með stjórnmálamönnunum geta verið um einstaka málefni sem eru á dagskrá nefndarinnar eða önnur mál sem falla undir fagsvið nefndarinnar. Sendinefndir munu fá 15 mínútur til að kynna sjónarmið sín og svara spurningum nefndarinnar.

Norrænir borgarar geta beðið um áheyrn í tengslum við fundi nefnda. Fundirnir eru haldnir í janúar, mars, júní, september og nóvember ár hvert. Dagskrá nefndarfunda er birt á vefsíðunni www.norden.org viku fyrir fund.
 
Fulltrúar í nefndunum munu ekki bregðast við spurningum eða skoðunum sem sendar eru, en pólitísk umfjöllun verður á lokuðum fundi í framhaldi af áheyrn.

Beiðni um áheyrn skal senda til:
Norðurlandaráðs
Ved Stranden 18
DK-1061 Kaupmannahöfn
Sími: +45 33960400
Netfang: nordisk-rad@norden.org

Fyrirspurnir skal senda til Norðurlandaráðs í síðasta lagi fjórum dögum fyrir fundi nefnda. Næstu fundir Norðurlandaráðs verða í Ósló dagana 24. og 25. janúar 2012.

Tengiliðir

Tina Bostrup
Sími +45 33 96 04 52
Tölvupóstur tib@norden.org

Heidi Orava
Sími +45 33 96 04 60
Tölvupóstur heor@norden.org

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Tengt efni