Document Actions

Hlýrra loftslag eykur hættu á dýrasjúkdómum

Hætta er á að nýir dýrasjúkdómar breiðist út til Norðurlandanna vegna loftslagsbreytinganna. Sérstaklega er hætta á útbreiðslu þeirra með skordýrum. Þetta sagði Jan Mousing yfirdýralæknir frá Danmörku á loftslagsnámstefnu í Växjö á miðvikudag.

25/06 2008

Eitt dæmi um slíkt er sjúkdómurinn „Bluetongue“ sem smitast með mýi. Þúsundir kvíga og sauðfjár liðu af þessum sjúkdómi meðal annars í Þýskalandi og Belgíu í fyrra. Nú hefur sjúkdómurinn breiðst út til Danmerkur.

Það eru sennilega hin heitu sumur 2006 og 2007 sem valda hinni miklu útbreiðslu á „Bluetongue“, sagði Mousing.

Mousing lýsir eftir auknu samstarfi milli stjórnvalda og rannsóknastofnana til að halda ástandinu í skefjum.

Fundurinn á miðvikudag var haldinn í tengslum við sumarfund norrænu matvæla-, sjávarútvegs-, landbúnaðar- og skógræktarráðherranna í Växjö, dagana 25.-27. júní. Námstefnan fjallaði einnig um samhengið milli loftslags og lífefnaeldsneytis miðað við neikvæð áhrif olíu á loftslagið.

Sú staðreynd að við verðum að minnka notkun jarðefnaeldsneytis auk síhækkandi olíuverðs hefur haft í för með sér aukna notkun lífefnaeldsneytis. Eftirspurnin mun aukast enn meira ef við eigum að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið hvað varðar orkunotkun og verndun loftslagsins í þjóðlöndunum og á alþjóðavettvangi, sagði Gustavsson.

Jafnvel þó Norðurlöndin hafi náð langt á sviði lífefnaeldsneytis eru þar enn miklir ónýttir möguleikar, sagði Gustavsson jafnframt.

Loftslagsbreytingarnar munu einnig hafa afleiðingar fyrir sjávarútveg á Norðurlöndum sagði Håkan Westerberg frá Fiskeriverket. Nýjar tegundir munu sennilega birtast með hlýrri sjó samhliða því að aðrar tegundir munu hverfa frá ákveðnum svæðum.

Norðurlöndin hafa innleitt metnaðarfulla áætlun til að skoða afleiðingar loftslagsbreytinga á náttúruauðlindir á Norðurlöndum. Áætlunin sem kynnt var á námstefnunni á miðvikudag er hluti af norræna hnattvæðingarferlinu.

Forsætisráðherrar Norðurlandanna samþykktu ferlið á sumarfundi sínum í Punkaharju í Finnlandi í fyrra.

Ráðherrafundurinn sem nú stendur yfir í Växjö er haldinn á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, en Svíar fara með formennsku í henni í ár.