Hörð samkeppni á alþjóðlegum þekkingarmarkaði
Hvernig má koma á framfæri við heiminn upplýsingum um styrk Norðurlanda á sviði æðri menntunar og rannsókna? Hvernig tryggjum við okkur bestu námsmennina og vísindamennina á alþjóðlegum þekkingarmarkaði? Danir ætla á formennskutíma sínum í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári að leggja áherslu á að kynna norræna þekkingu.
Ráðuneyti vísinda, tækni og þróunar í samstarfi við danska menntamálaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu í Kaupmannahöfn þann 15.apríl 2010, þar sem fjallað verður um hvernig standa megi að kynningu á menntun og rannsóknum á Norðurlöndum á alþjóðavettvangi.
Með tilkomu norræna hnattvæðingarátaksins árið 2007 setti Norræna ráðherranefndin í forgang að efla gæði rannsókna og nýsköpunar til að Norðurlönd gætu laðað að hæfileikafólk og viðhaldið framþróun og hagvexti.
Norðurlönd eru í kapphlaupi við önnur Evrópuríki og víðar. Kapphlaupi um menntun og þekkingu til að laða að hæfasta fólkið. Á þeim markaði er með öllum ráðum reynt að lýsa og koma á framfæri eigin styrk á alþjóðlegum þekkingarmarkaði.
Mikilvægt er fyrir frammistöðu norrænu ríkjanna í keppninni um bestu námsmennina og vísindamennina á alþjóðlega þekkingarmarkaðnum að vekja athygli á gæðum og styrkleika á sviði æðri menntunar og rannsókna.
En hvernig er best að vekja athygli á gæðum í norrænni menntun og rannsóknum?
Í dag nota menn í auknum mæli röðun til þess að meta og vekja athygli á árangri æðri menntastofnana.
En í alþjóðlegum samanburði getur verið erfitt að færa sönnur á og þar með auglýsa hinar ólíku norrænu stofnanir og margvíslegar tegundir gæða í rannsóknastarfi.
Á ráðstefnunni vilja Danir taka mið af þróuninni í Evrópu og ræða hvernig koma má gæðum í norrænu háskólastarfi á framfæri á alþjóðavettvangi og einnig flokkun og röðun frá norrænu sjónarhorni.
- Hvernig viðhöldum við þeim styrk sem fjölbreytileiki norrænna stofnana skapar?
- Hvernig færum við sönnur á og markaðssetjum mikil gæði í menntun og rannsóknum?
- Hvernig má nota nýju evrópsku líkönin hvað varðar flokkun og röðun til að stuðla að kynningu á æðri menntun og rannsóknum á Norðurlöndum?
- Eru gildar ástæður fyrir þátttöku norrænu ríkjanna í þróunarstarfi á sviði flokkunar og röðunar æðri menntastofnana?
- Hvernig getur ráðstefnan orðið upphafspunktur nánara norræns samstarfs á þessu sviði?
Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem leitast verður við að svara.
Frestur til að skrá sig er 25. mars og nánari upplýsingar um dagskrá eru á nordichepromotion.dk
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
