Hundrað ár og hálft konungsríkið
Í ár eru eitt hundrað ár liðin frá sambandsslitum Noregs og Svíþjóðar. Hátíðarritið “Hundrað ár og hálft konungsríkið” sem gefið er út af Aschehoug bókaútgáfunni, er safn greina um samband Noregs og Danmerkur – en ríkin voru tengd allt til ársins 1814.
Meðal höfundanna eru Jørn Lund, Tor Boman Larsen, Rasmus Dahlberg, Leni Stålvik, Erik Skyum Nielsen, Monna Dithmer, Lars Saabye Christensen og Else Marie Bukdahl.
Ritstjórarnir eru tveir, þau Anders Beyer og Louise Beck. Anders Beyer er með kandídatspróf í tónlistarsögu og hefur kennt sem stundakennari við Kaupmannahafnarháskóla. Hann er listrænn stjórnandi Athelas Sinfonietta Copenhagen og ritstjóri tímaritanna Dansk Musik Tidsskrift og Nordic Sounds.
Louise Beck er leikmyndahönnuður og stundaði nám við Wimbledon School of Art í London. Árið 1996 stóð hún fyrir uppfærslunni á óperunni Fjórða söng Guðrúnar, sem þótti einn best heppnaði viðburðurinn árið sem Kaupmannahöfn var menningarborg Evrópu. Tónlistin við óperuna fékk nýlega tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.
