Document Actions

Hvað hefur áunnist á sviði jafnréttismála á Norðurlöndunum frá því að kvennaráðstefnan var haldin í Peking 1995?

Hvað hefur áunnist á sviði jafnréttismála á Norðurlöndunum frá því að kvennaráðstefnan var haldin í Peking 1995? Ráðherranefnd um jafnréttismál verður á staðnum þegar kvennaþing Sameinuðu þjóðanna (CSW), það 54 í röðinni, hefst í húsakynnum Sameinuðu þjóðanna í New York í byrjun mars. Norræn ráðherrarnir munu kynna norrænar niðurstöður og áskoranir í jafnréttisstefnunni.

01/03 2010
COP15

Þriðjudaginn 2. mars taka norrænu jafnréttisráðherrarnir þátt í námstefnu undir yfirskriftinni: Pólitískur árangur og verkefni á jafnréttissviði á Norðurlöndum.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

CSW þing ársins er haldið í tilefni þess að nú eru 15 ár liðin frá kvennaráðstefnunni í Peking. Hún mótaði umgjörð um jafnrétti kvenna og karla og hefur verið ein af grunnstoðum framfara í heiminum hvað varðar bætta stöðu kvenna.

Norræna ráðherranefndin stendur fyrir svonefndum hliðarviðburði á CSW ráðstefnunni í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Þriðjudaginn 2. mars taka norrænu jafnréttisráðherrarnir þátt í námstefnu undir yfirskriftinni: Pólitískur árangur og verkefni á jafnréttissviði á Norðurlöndum. Föstudaginn 5. mars munu norrænir sérfræðingar um jafnréttismál kynna hugmyndir sínar um: Pólitískan árangur og verkefni á jafnréttissviði á Norðurlöndum.

Kvennaráð Sameinuðu þjóðanna tilheyrir efnahags- og félagsmálaráði SÞ og fjallar um jafnréttismál og stöðu kvenna. Fulltrúar á árlegu þingi Sameinuðu þjóðanna eru ákvarðanatakendur, embættismenn, fulltrúar frjálsra félagasamtaka og fulltrúar annarra samtaka og stofnana frá heiminum öllum. Þeir munu á þinginu meta framfarir og verkefni er varða jafnréttisstefnu og leggja á ráðin um leiðir og staðla til að bæta jafnrétti og stöðu kvenna alls staðar í heiminum.

Þátttakan í CSW er liður í þeirri viðleitni norrænu ríkjanna að kynna norræn gildi á alþjóðavettvangi, eins og jafnrétti og mannréttindi.

Nánari upplýsingar um norrænar námstefnur á kvennaþingi Sameinuðu þjóðanna

Nánar um kvennaþing Sameinðu þjóðanna

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org