Hver er framtíðarstefna norrænu ríkjanna í neytendamálum?
Hvað ætla Danir á formennskuári sínu í Norrænu ráðherranefndinni að gera til þess að byggja upp neytendasamstarf á Norðurlöndum? Borgara- og neytendanefndin sendir nú fyrirspurnir til norrænu samstarfsráðaherranna um framtíðarstefnu Norðurlandanna á sviði neytendamála.
Hvað ætla Danir á formennskuári sínu í Norrænu ráðherranefndinni að gera til þess að byggja upp neytendasamstarf á Norðurlöndum?
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/Norden.org
- Bertel Haarder samstarfsráðherra Danmerkur sagði á kynningu á formennskuáætlun Dana í Norrænu ráðherranefndinni fyrir danska þingið að ef óformlegt samstarf um neytendamál virkar ekki, verði að hefja á ný formlegt samstarf um málefnið. Þess vegna viljum við vita hvernig óopinbera samstarfið hefur virkað síðan árið 2006, segir Henrik Dam Kristensen, fulltrúi í borgara- og neytendanefndinni og flokkahópi jafnaðarmanna í Norðurlandaráði.
Ráðherranefnd um neytendamál var lögð niður 2006. Atvinnulífið og neytendasamtök vilja nú að opinbert samstarf hefjist á ný. Fulltrúar frá samtökum atvinnulífsins í Danmörku (Dansk Erhverv) og dönskum og evrópskum neytendasamtökum tóku þátt í málþingi nefndarinnar um neytendamál í Kaupmannahöfn, miðvikudaginn 27. janúar.
- Við þurfum að endurvekja opinbert norrænt samstarf félaga, stjórnvalda og ráðuneyta um neytendastefnu til þess að samhæfa ESB-starfið á öllum stigum ferlisins - bæði fyrir og eftir framkvæmd, sagði Benedicte Federspiel frá dönsku neytendasamtökunum (Forbrugerrådet) á miðvikudag.
Borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs hefur um nokkurt skeið unnið að því að koma neytendamálum á dagskrá norræns samstarfs. Málþingið um neytendamál var haldið samhliða janúarfundum Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.
Tengiliðir
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
