Áhugi fyrir nýtingu auðlinda á Norðurskautssvæðinu hefur aldrei verið meiri en nú, en hann getur ógnað viðkvæmu heimskautsloftslaginu á svæðinu. Árið 2012 gagnrýndi Norðurlandaráð norrænu ríkisstjórnirnar harðlega fyrir aðgerðarleysi við að tryggja náttúruauðlindir á Norðurskautssvæðinu. Norræna ráðherranefndin hefur, byggt á tillögum Norðurlandaráðs, beint sjónum að því hvaða áskoranir aukin nýting náttúruauðlinda muni hafa í för með sér fyrir umhverfið. Haldið verður heilsdagsmálþing um sjálfbærni í Stokkhólmi 9. apríl 2013.
Málþingið Sjálfbær atvinnulífsþróun og nýtingar náttúruauðlinda verður haldið í tengslum við þemafund Norðurlandaráðs og verður sjónum beint að því hvernig norrænt samstarf getur stuðlað að sjálfbærri stjórnun náttúruauðlinda. Þróun atvinnulífs á Norðurskautssvæðinu og meðferð umhverfismála í efnahagsuppbyggingu á norðurslóðum verður efst á dagskrá.
Öll Norðurlöndin vilja efla sjálfbæra nýtingu auðlinda á Norðurskautssvæðinu og vilja nýta möguleikana á þróuninni á norðurslóðum til að tryggja vöxt og atvinnutækifæri í löndunum. Norðurlöndin búa að langri reynslu af stjórnun náttúruauðlinda á Norðurskautssvæðinu og lög, reglur og atvinnumálastefna eru þegar til staðar, sem eru aðlöguð tækifærum og áskorunum á norðurslóðum, auk þess að vera tengd umhverfismálum og sjálfbærni.
Ný tækifæri eru að verða til í námuvinnslu á norðurslóðum, til að mynda vinnsla sjaldgæfra málma úr jörðu. Sjálfbær stjórnun, og til lengri tíma, fisktegunda í Barentshafi hefur styrkt stofnana á hafsvæðinu, meðal þeirra þorsk-, ufsa-, og loðnustofna. Loftslagsbreytingar geta hins vegar haft áhrif á ferðir fisktegunda og þess vegna getur verið þörf á nýju alþjóðlegu samstarfi um stjórnun. Flutningar á sjó á Norðurskautssvæðinu eru að aukast, ekki síst vegna bráðnunar heimskautsíssins.
Í júní 2012 sendi Norðurlandaráð tilmæli til Norrænu ráðherranefndarinnar (tilmæli 6/2012) um „standa fyrir málþingi í samstarfi við Norðurlandaráð, með þátttöku fulltrúa olíuiðnaðarins, stjórnvalda sem hafa eftirlit með höndum, samfélaganna sem málið varðar, náttúruverndarsamtaka og fleirum um umhverfisáhrif olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum." Norræna ráðherranefndin hélt undirbúningsfund þann 29. október 2012 í Helsinki. Í kjölfar umræðu á fundinum var ákveðið að víkka sjónarhorn málþingsins og að taka einnig með sjálfbæra stjórnun auðlinda almennt og umhverfisáhættu sem tengist námuvinnslu, skipaumferð og fiskveiðum á Norðurskautssvæðinu.
Málþing: Sjálfbær atvinnuþróun og nýting náttúruauðlinda á Norðurskautssvæðinu 9. apríl 2013
Tími: kl. 09.00 – 15.00
Staður: Hörsalen, Kungl. Akademien för de fria konsterna, Fredsgatan 12, 103 26 Stokkhólmi
Vinsamlega notið krækju hér að neðan til að skrá þátttöku, í síðasta lagi 20. mars.
https://survey.enalyzer.com/?pid=r7c7q5t3
Málþingið er opið öllum á meðan húsrúm leyfir.
Breytingar geta orðið á dagskrá.
Frøydis Johannessen
Sími
+45 21 71 71 44
Tölvupóstur
frjo@norden.org
Marianne Neraal
Sími
+4529692986
Tölvupóstur
mane@norden.org