Hvít-Rússar horfi til norræna velferðarlíkansins
Geta Hvít-Rússar notfært sér norrænar lausnir sem fyrirmynd við framtíðaruppbyggingu í landinu? Leitað var svara við þessari spurningu á sögulegum fundi þingmanna frá Hvíta-Rússlandi, Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum í höfuðborginni Minsk dagana 22.-23. mars.
Hringborðsumræður þingmanna voru skipulagðar af Norðurlandaráði sem hefur tekið virkan þátt í lýðræðisuppbyggingu í Hvíta-Rússlandi frá árinu 2007. Þetta var fjórði fundurinn sem ráðið stendur fyrir um málefni Hvíta-Rússlands og sá fyrsti sem haldinn er í Hvíta-Rússlandi.
Markmið þessara hringborðsumræðna er að bæta samskipti Hvít-rússneskra stjórnvalda og leiðtoga stjórnarandstöðu sem starfa utan þingsins, auk þess að stuðla að lýðræðisþróun og virkri samfélagsþátttöku í Hvíta-Rússlandi. Að þessu sinni var meginefni ráðstefnunnar reynslan af norræna velferðarlíkaninu og þau tækifæri sem bjóðast með nýrri Eystrasaltsstefnu ESB.
Umræðurnar nú snérust að mestu um efnahags- og umhverfismál, en eins og á fyrri fundum spunnust líflegar umræður milli þingmanna stjórnarandstöðu og fulltrúa núverandi ríkisstjórnar. Stjórnarandstaðan ræddi meðal annars þær hindranir sem hún rekst á þegar hún reynir að vera virk í aðhaldi sínu á stjórnvöld og bjóða fram til frjálsra kosninga. Sérstaklega var rætt um að það væri nær ógjörningur að stofna nýja stjórnmálaflokka og frjáls félagasamtök í Hvíta-Rússlandi.
Alls tóku 50 þingmenn, embættismenn og stjórnarandstöðuþingmenn frá 9 löndum þátt í umræðunum. Dagfinn Høybråten þingmaður á norska þinginu og fyrrverandi forseti Norðurlandaráðs, var fundarstjóri. Hann átti frumkvæði að fundinum og ber ábyrgð á tengslum Norðurlandaráðs við Hvíta-Rússland. Samstarfið heldur áfram og strax í júní á þessu ári verður haldin álíka fjölmenn ungmennaráðstefna í Vilníus. Til lengri tíma er einnig unnið að því að koma á fót mannaskiptum fyrir stjórnmálamenn á Norðurlöndum og í Hvíta-Rússland með aðild stjórnarandstöðunnar.
- Von okkar er sú að grannríki í austri taki skref að inngöngu í evrópsku fjölskylduna sem Evrópuráðið er fulltrúi fyrir, með því að viðurkenna og hrinda evrópsku mannréttindayfirlýsingunni í framkvæmd, segir Dagfinn Høybråten.
