Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslan prófraun fyrir alþjóðafjármálaheiminn
Ísland stendur frammi fyrir kosningum um samninginn sem ríkisstjórn landsins gerði við England og Holland um Icesave-málið. Fjöldi álitsgjafa er á því að málið geti valdið miklum usla í alþjóðafjármálaheiminum ef niðurstaðan verður sú að hægt sé að komast undan meiri háttar álögum með kosningum, líkt og um er að ræða í þessu tiltekna dæmi.
Uppi á vegg í íþróttahúsi í nágrannasveitarfélagi Reykjavíkur er tilkynning. Þar er íþróttafólki bent á, að húsið verði lokað laugardaginn 6. mars ef gengið verður til þjóðaratkvæðis þann dag.
Þegar gestir íþróttahússins lesa tilkynninguna eru 5 dagar til kosningadagsins þar sem kjósendur greiða atkvæði um örlög Icesave-laganna og enn veit enginn hvort af kosningunum verður í raun og veru.
Fátt er eins lýsandi fyrir ástandið á Íslandi þessa dagana og tilkynningin. Kannski verður kosið, en ef ekki verður kosið veit fólk ekki hvað kemur í staðinn.
Lesa alla greinina analysnorden.org
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
