Document Actions

Jafnrétti á Vestur-Norðurlöndum

Karlar á Vestur-Norðurlöndum og ofbeldi gegn konum verða á dagskrá ráðstefnu sem haldin verður fimmtudaginn 2. september í Ilulissat á Grænlandi, í samstarfi Dana sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og félagsmálaráðuneytis Grænlands.

Aug 11, 2010
Rød båt utenfor Ilulissat

Rauður bátur við strendur Ilulissat

Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/norden.org

Maliina Abelsen, félagsmálaráðherra Grænlands, setur ráðstefnuna. Hún mun fjalla um aðgerðir til að stuðla að  jafnrétti á Vestur-Norðurlöndum og beina sjónum sérstaklega að Grænlandi. Þá munu fyrirlesarar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi ræða meðal annars um ofbeldi gegn konum, konur og velferð á Vestur-Norðurlöndum og starfsframa, hjónabönd og samskipti kynjanna.

Einnig verður rætt um kynjasamþættingu á ráðstefnunni. Kira Appel fulltrúi í embættismannanefnd um jafnréttismál mun kynna stefnumið og tæki sem nýtt eru í kynjasamþættingu og nýst hafa til að jafna hlut kynja  á Norðurlöndum.

Íslendingar beindu á formennskuári sínu í Norrænu ráðherranefndinni 2009 sjónum að jafnréttismálum á Vestur-Norðurlöndum. Danir ákváðu svo að taka við því kefli og leggja áherslu á jafnréttismál á formennskutíma sínum á þessu ári.

Markmiðið með ráðstefnunni er að komast að samkomulagi og mynda tengslanet á þeim sviðum sem nýst geta Vestur-Norðurlöndum í aðgerðum til að stuðla  að  jafnrétti.

Tengiliðir

Pino Kosiander
Sími +45 33 96 03 45
Tölvupóstur pinkos@norden.org

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Tengt efni
  • Ráðherranefnd um jafnrétti (MR-JÄM) (Organisation)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um jafnréttismál er stýrt af jafnréttisráðherrunum, en þeir sitja í ráðherranefnd um jafnréttismál (MR-JÄM). Sameiginleg menning, saga og lýðræðishefðir Norðurlandanna gera þeim kleift að þróa náið og uppbyggilegt samstarf á sviði jafnréttismála.

  • Pólitískir saumaklúbbar? (News Item)

    Jafnrétti þýðir ekki alltaf það sama á Vestur-Norðurlöndum. Íslendingar hafa til að mynda bannað kaup á kynlífsþjónustu, að fyrirmynd Svía, sett kynjakvóta fyrir stjórnarsetu í fyrirtækjum, að fyrirmynd Norðmanna og þeir urðu fyrstir til þess í Evrópu að banna nektardans. Á meðan glíma Færeyingar enn við að auka stjórnmálaþátttöku kvenna.