Document Actions

Jafnréttisráðherrar taka þátt í kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2013

Aðgerðir Norðurlandanna til að hvetja karla og drengi til að vinna gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum hafa tekist vel. Þessi afstaða gagnvart ofbeldismálum verður ofarlega á baugi þegar jafnréttisráðherrar norrænu ríkjanna með Maria Arnholm jafnréttisráðherra Svía í fararbroddi fara til New York til að taka þátt í árlegri kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.

25/02 2013
Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/norden.org

Kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna í ár (CSW) er haldin undir yfirstkriftinni Ofbeldi karla og drengja gegn konum og stúlkum. Norrænu jafnréttisráðherrarnir taka þátt og munu kynna norræn sjónarmið ásamt lausnum og áskorunum sem tengjast málefninu.

„57. ráðstefnan er mikilvæg fyrir norrænu ríkin til að standa vörð um kynbundin réttindi kvenna og til að efla samstöðu gegn ofbeldi gagnvart konum“, segir Maria Arnholm, jafnréttisráðherra Svía, en Svíar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni 2013.

Arnholm og starfssystkin hennar  Paavo Arhinmäki (Finnlandi), Manu Sareen (Danmörku) og Inga Marte Thorkildsen ásamt Kristínu Ásgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, munu taka þátt í pallborðsumræðum 6. mars, þar sem rætt verður um mikilvægi þess að fá karla og drengi til að taka þátt í því starfi að koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og stúlkum. Jan Eliasson varaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjoðanna mun setja ráðstefnuna.

„Norræn samstaða um þessi mál gerir okkur að sterkum aðila þrátt fyrir smæð okkar“, segir Maria Arnholm.

57. kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna, sem haldin er árlega, verður sett í New York þann 4. mars. Norræna jafnréttissamstarfið verður kynnt á nokkrum þjóðlegum og norrænum hliðarviðburðum. Hægt er að fylgjast með þátttöku ráðherranna í New York á www.norden.org/csw57 og á Twitter, @nordenen.

Tengiliðir

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org