Document Actions

Kanada og Norræna ráðherranefndin innleiða nýtt samstarf

Efla skal samstarf milli Norðurlanda og Kanada. Þetta staðfestu Lawrence Cannon utanríkisráðherra Kanada og Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar í Ottawa á þriðjudag.

Dec 08, 2009
 Halldór Ásgrímsson och Lawrence Cannon

Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar sækir þessa vikuna heim ráðherra í ríkisstjórn Kanada.

Ljósmyndari
Anna Gran/norden.org

Norðurlönd ætla að leggja aukna áherslu á samstarf við Kanada í nánustu framtíð. Þetta var niðurstaðan af fundi kanadíska utanríkisráðherrans og sendinefndar Norrænu ráðherranefndarinnar. Á fundinum var sérstaklega rætt um samstarf á sviði nýsköpunar, umhverfismála, sjávarútvegs, menntunar og rannsókna, félags- og heilbrigðismála og menningar og sérstök áhersla var lögð á skapandi iðnað.

Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar er þessa dagana í heimsókn hjá kanadísku ríkisstjórninni, ásamt Íslendingum sem nú fara með formennsku í nefndinni og Dönum sem taka við formennsku íum áramótin.

Efst á dagskrá eru úrlausnarefni sem snúa að umhverfisvernd, efnahagsmálum og samfélagslegum málefnum, eins og hvaða áhrif hnattvæðingin og loftslagsbreytingar hafa á Norðurskautssvæðin og strandsamfélög við Norður-Atlantshaf.

Þegar stefna Kanadastjórnar um norðurslóðir var kynnt í júní sagði kanadíski utanríkisráðherrann, að þörf væri á skapandi aðgerðum, hvort heldur væri í svæðasamstarfi eða í alþjóðasamstarfi til að tryggja aukinn skilning á raunveruleikanum á Norðurskautssvæðinu, m. a. á menningu og lífstíl frumbyggja á norðurslóð.

Á fundinum með framkvæmdastjóranum náðist samkomulag um að vinna í sameiningu að því að efla og bæta skilning alþjóðasamfélagsins á þeim úrlausnarefnum sem íbúar Norðurskautssvæðisins standa frammi fyrir.

Samstarfið við grannþjóðir Norðurlanda í vestri er sérlega mikilvægt fyrir Ísland, sem lýkur nú formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Danir, sem taka við formennsku af Íslendingum 1. janúar, leggja einnig áherslu í sinni formennskuáætlun á að byggja upp samstarf við grannríki í vestri, ekki síst Kanada.

Norræna ráðherranefndin á nú þegar aðild að verkefnum með fjölmörgum kanadískum samstarfsaðilum, til að mynda um nýsköpun, orku- og heilbrigðismál, sem tengjast Norðurskautssvæðinu sérstaklega. Fjölmargar norrænar stofnanir eiga í samstarfi við kanadíska samstarfsaðila, meðal annarra Norræna Atlantshafssamstarfið (NORA), Norræna stofnunin á GrænlandiNAPA) og Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe).

Innan ramma Norðurskautsáætlunarinnar styrkir ráðherranefndin árlega fjölmörg norðurskautsverkefni. Norræna ráðherranefndin vill efla sjálfbæra þróun á Norðurskautssvæðinu með tilliti til atvinnulífs, menningar og náttúruverndar. Norræna ráðherranefndin á áheyrnarfulltrúa í Norðurskautsráðinu, en Danir fara með formennsku í ráðinu.