Karen Ellemann nýr samstarfsráðherra Danmerkur
Karen Elleman (V) fyrrverandi innanríkis- og félagsmálaráðherra Dana var á þriðjudag skipuð umhverfis- og samstarfsráðherra.
Ég hlakka til að leita samnorrænna lausna við þeim viðfangsefnum sem hnattvæðingin hefur fært okkur, segir Karen Ellemann.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Karen Elleman frá Vinstri - flokknum í Danmörku mun fara með málefni norrænnar samvinnu.
Lars Løkke Rasmussens forsætisráðherra stokkaði upp í ríkisstjórn sinni á miðvikudag og kynnti Margréti Þórhildi Danadrottningu breytta ráðherraskipan.
Karen Ellemann tekur við sem samstarfsráðherra af Bertel Haarder einum reyndasta ráðherra dönsku stjórnarinnar, en hann varð um leið innanríkis- og heilbrigðisráðherra.
Jafnframt því að taka við embættinu, verður Karen Ellemann formaður Norrænu ráðherranefndarinnar, þar sem Danir leiða ríkisstjórnarsamstarfið á þessu ári..
- Á formennskutíma Dana í Norrænu ráðherranefndinni á árinu hefur verið unnið ötullega að því að auka pólitísk áhrif norrænnar samvinnu og koma þessu einstaka samstarfi á heimskortið. Ég hlakka til að vinna að þessum málefnum og sérstaklega að leita samnorrænna lausna við þeim viðfangsefnum sem hnattvæðingin hefur fært okkur, segir nýi samstarfsráðherrann.
Karen Ellemann var kjörin á þing árið 2007. Hún hefur áður farið með málefni samþættingar og fjölskyldumála fyrir Vinstri - flokkinn. Nýi umhverfis- og samstarfsráðherrann er kennari að mennt.
Tengiliðir
Lene Frees
Sími
+45 33 96 03 26
Tölvupóstur
lf@norden.org
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org
Eva Marie Steenberg fulltrúi á skrifstofu samstarfsráðherra. Netfang: evavag@um.dk Beinn sími: +45 3392 0447 Farsími: +45 5077 8615
