Norðurlandaráð kaus Kimmo Sasi forseta ráðsins 2012. Finnar munu fara með formennsku í Norðurlandaráði á næsta ári. Silvia Modig var kosin varaforseti ráðsins.
„Á tímum efnahagserfiðleika verðum við að standa vörð um velferð okkar og velferðarkerfi, auka samstarfi og bæta það með því að læra hvert að öðru. Við eigum að vera meðvituð um að við eigum mjög gott vörumerki og í sameiningu getum við gert það sem við gerum best - best practice - að hágæða útflutningsvöru", segir Kimmo Sasi.
Sasi (Einningarflokknum, fulltrúi í flokkahópi íhaldsmanna í Norðurlandaráði) ítrekar að norræna vörumerkið, sem byggir á velferðarlausnum verði styrkt enn frekar. Málefni norðurskautssvæðisins og afnám stjórnsýsluhindana eru að hans mati einnig brýn úrlausnarefni.
„Við getum ekki haldið áfram að útskýra fyrir samlöndum okkar hvers vegna þeir eru metnir öryrkjar í einu landi en settir í starfsendurhæfingu í öðru, til að þeir eigi rétt á lífeyri. Við getum heldur ekki sagt við verðandi mæður að þær verði að fæða réttum megin við landamærin, eða við feður að þeir verði að vinna í tilteknu landi til að fá feðraorlof", segir Sasi og bendir á að það komi í hlut þingmanna, sérstaklega þeirra sem sitja í Norðurlandaráði að fylgja því eftir að stjórnsýsluhindranir verði afnumdar eða leystar með öðrum ráðum.
Kimmo Sasi segir loftslagsbreytingarnar á norðurhveli jarðar opna mikla möguleika fyrir Norðurlöndin. Öll norrænu ríkin hafa myndað sér stefnu um Norðurskautssvæðið, á sama tíma og umheimurinn sýnir framþróun þar sífellt meiri áhuga.
„Norðurlönd gegna stóru hlutverki í Norðurskautsráðinu. Mikilvægt er að við styðjum áfram við ráðið sem meginstofnun fyrir norðurskautssamstarf. Fyrst og fremst getum við stuðlað að því að gera ráðið að sjálfstæðri alþjóðlegri stofnun með eigin fjárhag. Mikilvægt skref í þá átt hefur þegar verið stigið með því að setja upp skrifstofu fyrir Norðurskautsráðið í Tromsö.
Sasi taldi einnig að ESB, sem sett hefur sér eigin Norðurskautsstefnu, geta stuðlað að því að styrkja stöðu þessa heimshluta á alþjóðavettvangi.
- Mikilvægur hluti þessa starfs er að koma tillögu um upplýsingamiðstöð um Norðurskautssvæðið fyrir ESB í Rovaniemi í framkvæmd.
Heidi Orava
Sími
+45 21 71 71 48
Tölvupóstur
heor@norden.org