Document Actions

Kínverjar áhugasamir um norrænt matvælaöryggi

Aðgerðir til að stemma stigu við salmonellusýkingum og aðrar leiðir til að bæta matvælaöryggi á Norðurlöndum vöktu mikla athygli í Sjanghæ á mánudag. Fullt hús var á málþingi um matvælaöryggi sem Norðurlönd og Kínverjar stóðu að. Um helmingur 160 málþingsgesta var Kínverjar.

Sep 01, 2010
Norden til Verdensudstillingen i Shanghai 2010

Pu Changcheng aðstoðarráðherra

Ljósmyndari
Patrik Edman

Markmiðið með málþinginu var að miðla reynslu Norðurlanda af því að tryggja örugga matvælaframleiðslu og mynda tengsl til þess að efla samstarf við Kína á þessu sviði.

Mikill munur er á norrænu ríkjunum og Kína, matvælaöryggi á Norðurlöndum er með því besta í heiminum, en Kínverjar eiga enn langt í land. Með reglulegu millibili berast fréttir af hneysklismálum í Kína sem tengjast matvælaframleiðslu, nú síðast um eitrað mjólkurduft.

Meðal þátttakenda á málþinginu voru ráðherrar frá Kína og Norðurlöndum ásamt háttsettum embættismönnum úr matvælageiranum. Meðal frummælenda voru m.a. matvælaráðherrar Danmerkur og Finnlands Henrik Høegh og Sirkka-Liisa Anttila ásamt Pu Changcheng, aðstoðarráðherra AQSIQ, stjórnvalds sem ber ábyrgð á gæðaeftirliti í matvælaframleiðslu í Kína.

Ráðstefnugestir r fengu einnig tækfæri til að bragða á norrænum mat, sem eldaður var úr hráefni frá Norðurlöndum af þremur norrænum matreiðslumönnum í fremstu röð. Á þinginu voru einnig haldnir tveir blaðamannafundir, einn um matvælaöryggi og annar með matreiðslumönnunum.

Málþingið var haldið af Norrænu ráðherranefndinni í samstarfi við AQSIQ. Tugir viðburða hafa verið haldnir í Norræna vitanum, sem er samkomustaður Norðurlanda á heimssýningunni EXPO 2010 í Sjanghæ. Norræna ráðherranefndin hefur fjármagnað eða tekið þátt í mörgum þessara viðburða og er það liður í hnattvæðingarstarfi nefndarinnar.

Myndir frá ráðstefnunni

Tengiliðir

Nina Talvela
Sími 72276807
Tölvupóstur nita@fvst.dk

Lene Breum Larsen
Sími +4533960243
Tölvupóstur lbl@norden.org

Tengt efni
  • Food Safety – challenges and solutions (Event)

    Fødevaresikkerhed og – kontrol er et emne, som optager hele verden. Den 30. august 2010 vil Norden ved et lukket arrangement i Shanghai sætte fokus på netop fødevaresikkerhedens udfordringer og løsninger i et internationalt perspektiv. Derfor sættes nøglepersoner sammen fra Norden og Kina for at skabe en dialog, hvor deling af viden om initiativer i de to verdensdele vil være det centrale.

  • Örugg norræn matvæli í kastljósinu á heimssýningunni í Sjanghæ (News Item)

    Á Norðurlöndum getur maður verið öruggur um að óhætt sé að borða þann mat sem borinn er á borð. Þar hefur verið lögð rík áhersla á öryggi matvæla og meðal annars verið þróað aðferðir til að meðhöndla matvæli og lágmarka áhættu.

  • Ren och säker mat – en nordisk prioritet (Article)

    I Norden kan vi generellt sett lita på att den mat som ställs på matbordet är trygg att äta. Genom att sätta fokus på livsmedelssäkerheten har vi funnit lösningar för att hantera och minimera problemen. Vårt koncept bygger på att livsmedelsproducenterna också får ett större ansvar för livsmedelssäkerheten och att myndigheterna övervakar företagen och vid behov griper in målinriktat utifrån vetenskapligt baserade riskvärderingar. Vi tror att också övriga länder kan dra nytta av våra modeller.

  • Norræna ráðherranefndin um fiskveiðar, fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS) (Organisation)

    MR-FJLS er ráðherranefnd sem nær til fjögurra pólitískra sviða: Fiskveiða og fiskeldis, landbúnaðar, matvæla og skógræktar Meginverkefni MR-FJLS er að efla sjálfbæra nýtingu náttúru- og erfðaauðlinda.

  • Världsutställningen i Shanghai 2010

    Formålet er at profilere Norden som region, og præsentere nordiske løsninger, erfaringer og viden i tilknytning til expo temaet ”Better City, Better Life”. Den fællesnordiske indsats er koncentreret på de områder, hvor fælles aktiviteter skaber merværdi, og bedst muligt kompletterer de nationale indsatser. Aktiviteterne er udarbejdet på baggrund af prioriteringerne i de øvrige globaliseringsprojekter, de involverede sektorers prioriteringer samt Nordiska Samarbejdskomités (NSK) ”fact findiing mission” til Kina i efteråret 2008 og beskrives nedenfor: