Koma má í veg fyrir lyfjaónæmi með sameiginlegu kerfi
Enginn vill líða af SARS-öndunarfærasjúkdómi og allir vilja að sýklalyf sem notuð eru við sjúkdómum hafi tilætluð áhrif. Norðurlönd eru í fremstu röð í baráttunni gegn smitsjúkdómum, en það forskot dugar lítið ef samstarf á sér ekki stað og þekkingu er ekki miðlað á alþjóðavettvangi um faraldssjúkdóma og lyfjaónæmi.
Martin Kolberg Det norske Arbeiderparti (A). Nordiska rådets session 2010
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Því er brýnt, að mati norræns sérfræðingahóps sem skipaður var af Norðurlandaráði, að breiða út „Sjálfbæra heilsu, norræna One Health-kerfið". Að mati sérfræðinganna verða Danir að nýta formennskutíma sinn í ESB, sem hefst þann 1. janúar 2010, til að koma málinu á rekspöl og setja Sjálfbæra heilsu ofarlega í forgangsröðina.
Hugtakið One Health byggist á þeirri staðreynd að samhengi er á milli sjúkdóma í mönnum og dýrum og umhverfisins.
Ónæmi við sýklalyfjum er ofarlega á baugi í One Health-verkefninu. Norðurlöndum hefur tekist vel til við að halda þeim örverum sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum í lágmarki, meðal annars með forvörnum eins og takmarkaðri lyfjanotkun og notkun sýklalyfja sem hafa takmarkaða virkni. Þetta hefur tekist þrátt fyrir aukið lyfjaónæmi í grannríkjunum. Til þess að viðhalda þessu er brýnt að flytja út norræna kerfið.
- Með því að breiða út One Health-kerfið geta Norðurlönd stuðlað að því að ónæmi við sýklalyfjum minnkar í heiminum og jafnframt verndað heilsu Norðurlandabúa, segir Martin Kolberg, varaformaður borgara- og neytendanefndar Norðurlandaráðs.
Samkvæmt Alþjóðabankanum kostaði fuglaflensan alþjóðasamfélagið 1250 milljarða dollara. Það samsvarar 3,1 prósenti af vergri þjóðarframleiðslu heimsins. Það er því með öðrum orðum mikið í húfi þegar faraldur gengur yfir hnattvædd samfélög eins og fuglaflensa, SARS og H1N1.
Slíkir sjúkdómar berast frá dýrum í menn og til baka. . Á þann hátt þróast sjúkdómurinn og erfiðara verður við hann að eiga. Baráttan við slíka sjúkdóma veltur því á góðu samstarfi lækna og dýralækna.
Norrænu ríkin eru í fremstu röð í baráttunni gegn faraldurssjúkdómum, meðal annars með því að ráðast að rótum vandans.
- Með þekkingu sinni og aðferðum við meðhöndlun sjúkdóma hafa norrænu ríkin einstakt tækifæri til að verða ekki einungis í fremstu röð heldur í fararbroddi hvað varðar One Health og þau úrlausnarefni sem fylgja. Við höfum þróað aðferðir til að berjast við faraldurssjúkdóma og þær geta orðið mikilvægar útflutningvörur fyrir norrænu ríkin, sagði Henrik Dam Kristensen, fyrrverandi forseti Norðurlandaráðs, á norrænanum fundi um efnið í Kristjánsborgarhöll í maí 2011.
Annað dæmi um árangur sem náðst hefur með One Health á Norðurlöndum er baráttan gegn salmonelluveirunni. Síðan á tíunda áratug tuttugustu aldar hafa norrænu ríkin haft aðferðir til að finna upptök smits og smitleiðir, aðferðir sem eru undirstaða baráttunnar gegn sjúkdómum sem berast á milli dýra og manna. Aðferðin byggist á þvi að rekja sig tilbaka í keðjunni og finna hvaða smitið berst. Dæmi um slíka uppsprettu smits er mengað dýrafóður.
Norðurlandaráð stendur fyrir námstefnunni Sjálfbær heilsa – One Health frá norrænu sjónarhorni, mánudaginn 31. október samhliða Norðurlandaráðsþingi Kaupmannahöfn. Clement Kjersgaard er fundarstjóri og fjöldi sérfræðinga tekur þátt í umræðunum. Námstefnan hefst klukkan 17.15 og stendur til 19.15 í danska þinginu, Folketinget.
Tengiliðir
Jenny Pentler
Sími
+45 33 96 0445
Tölvupóstur
jepe@norden.org
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
