Document Actions

KreaNord opnar nýja vefsíðu

KreaNord heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og sköpunariðnaði. Fræðist um skapandi greinar á Norðurlöndum, skráið ykkur og tengist stærsta tengslaneti á sviði skapandi greina á Norðurlöndum.

Jan 12, 2012
Refleksjoner av hus
Ljósmyndari
Karin Beate Nøsterud/norden.org

KreaNord var liður í hnattvæðingarverkefnum Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2008. Markmið KreaNord er að auka verðmætasköpun skapandi greina á Norðurlöndum, sem bæði stuðla að hagvexti og nýsköpun í lista- og menningarlífi og atvinnulífi almennt. KreaNord hefur unnið fjórar tillögur að stefnu sem norrænu ríkin vinna eftir til að þróa sjálfbæra ramma um frekari þróun og vöxt á sviði menningar- og skapandi iðanaðar á Norðurlöndum.

Kreanord

KreaNord hefur myndað öflugt norrænt tengslanet sem leggur mikið af mörkum til hagvaxtar og atvinnustigs í norrænum hagkerfum. Í Evrópu eru skapandi greinar 3,3% af heildarhagkerfinu og það sama á við á Norðurlöndum.

Skráðu þig www.kreanord.org í dag. Tengdu þig þar með stærsta tengslaneti á sviði skapandi greina á Norðurlöndum. Tengslanet KreaNord er einnig á Facebook.

Tengiliðir

Therese Johansen
Sími +45 21 71 71 15
Tölvupóstur thjo@norden.org

Tengt efni