Document Actions

KreaNord tekur á móti umsóknum frá 27. mars 2013

KreaNord sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina auglýsir eftir umsóknum um styrki til skapandi greina á Norðurlöndum. Fyrsta umsóknarlota hefst þann 27. mars. Hægt er að sækja um allt að 1 milljón danskra króna (134.000 evrur). Norræna menningargáttin mun hafa umsjón með nýrri áætlun KreaNord frá mars 2013.

05/03 2013

Með áætluninni vill KreaNord bæta vaxtarmöguleika menningar- og skapandi greina á Norðurlöndum. Markmiðið með áætluninni er að samræma samstarf greina á Norðurlöndum - annað hvort með samstarfi milli núverandi starfsgreinasamtaka eða stofnun nýrra. Verkefnin mega gjarnan vera til margra ára.

Áhersla við mat á verkefnum verður lögð á að skapa vöxt í greininni. Að auki er lögð áhersla á að verkefnið geti haft margfeldisáhrif og stuðli að vexti í öðrum skapandi greinum.

Hverjir geta sótt?

Áætlun KreaNord er opin öllum aðilum í skapandi greinum á Norðurlöndum. Starfsgreinasamtök eru sérstaklega hvött til að sækja um.  Ef ekki eru til norræn starfsgreinasamtök er einnig hægt að sækja um fjármagn til að stofna slík samtök. Við mat á umsóknum verður lögð áhersla á stór stefnumótandi verkefni með norrænar áherslur. Hver umsækjandi og verkefni getur sótt um 1 milljón danskra króna eða 134.000 evrur.

Eins og í öðrum áætlunum sem Norræna menningargáttin hefur umsjón með, menningar- og listaáætluninni, mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á sviði menningar og NORDBUK verður norræn áhersla að vera mikil svo styrkir fáist til verkefnisins. Meðal annars er þess krafist að samstarfsaðilar skuli vera frá þremur ríkjum hið minnsta og skulu minnist tvö þeirra vera norræn. Þriðja landið má gjarnan vera utan Norðurlandanna. Það má einnig vera utan Evrópu.

Munur á þessari áætlun og öðrum sem Norræna menningargáttin hefur umsjón með er að KreaNord leggur áherslu á skapandi greinar. Í umsóknunum skulu vera upplýsingar um viðskiptahlið verkefna.

Ef lönd utan Norðurlanda taka þátt í verkefninu verður áhersla verkefnisins að vera á norræna sjónarhornið. Verkefnið á þess utan að stuðla að samstarfi og auka tengsl milli landanna.

Markmið

Meginmarkmið áætlunarinnar er að auka norrænt samstarf skapandi greina á Norðurlöndum. KreaNord vill með áætluninni stuðla að þróun skapandi greina á Norðurlöndum og að þær eigi þátt í að skapa velmegandi, skapandi og samkeppnishæf Norðurlönd.

Fylgist með á vefsíðu KreaNord www.kreanord.org, en þar er einnig hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfi.

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org