Document Actions

Kristin Halvorsen: Áfangakerfi kemur í veg fyrir brottfall

Umönnunarmenntun á Norðurlöndum laðar til sín marga námsmenn, en margir hætta námi. Betri tengsl við atvinnulífið og tækifæri til að bæta fræðilegum hluta við hagnýta menntun getur verið leið til að koma í veg fyrir þessa tilhneigingu, segir Kristin Halvorsen menntamálaráðherra Noregs.

26/04 2012
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

„Tengslin við atvinnulífið eiga að styðja við námsleiðirnar. Það er mikilvægt að ungt fólk fái tækifæri til að ná sér í starfsreynslu samhliða því að þeir halda áfram námi”, segir Kristin Halvorsen.

„Mér er einnig mjög umhugað um að þeir sem hefja hagnýtt nám geti haldið áfram og menntað sig á æðri stigum. Við vitum að í Noregi velur margt ungt fólk að hætta hagnýtu námi til þess að byrja í fræðilegu námi. Þess vegna gerum við nú tilraun til að athuga hvernig við getum breytt þessu”.

Velferðarstörf framtíðarinnar voru á dagskrá norrænu menntamálaráðherranna á fundi þeirra í Ósló þann 25. apríl. Eitt af grundvallaratriðum í umfjöllun ráðherranefndarinnar um velferðarmenntun og öflun starfsmanna til velferðarstarfa er að færni þjóðarinnar er mikilvægasti þátturinn fyrir hagvöxt. Margar áskoranir varðandi velferðarmenntun eru einnig sameiginlegar, nokkuð sem Kristin Halvorsen telur jákvætt þegar litið er til samstarfs.

„Enginn okkar nær árangri ef námsleiðirnar heppnast ekki. Við berum ábyrgð á að umönnunargeirinn og velferðarríkin hafi starfsmenn með rétta færni. Sameiginleg vandamál eru t.d. æðri menntun sem við verðum að laða fleiri að og að unga fólkið í löndunum okkar hefur tilhneigingu til að hætta hagnýtu námi. Einnig er sameiginlegt að margir fullorðnir vilja bæta við fagþekkingu sína”, segir Halvorsen.

Tækniþróunin hefur einnig áhrif á færnikröfur framtíðarinnar.

„Við stöndum andspænis öldu aldraðra í öllum ríkjunum og það mun verða eftirspurn eftir margvíslegri heilbrigðisþjónustu. Margir aldraðir munu einnig vilja búa heima, og það er stór áskorun fyrir okkur að finna tæknilausnir og þróa umönnunarlausnir”, segir Kristin Halvorsen.

Tengiliðir

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org