Kvikasilfurráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lokið
Bjartsýni ríkti þegar kvikasilfurráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lauk í Stokkhólmi á föstudag. Innri valdabarátta í ESB sem varpaði skugga á ráðstefnuna í byrjun vikunnar, hafði ekki þau slæmu áhrif á viðræður sem margir óttuðust. Þátttökuríkin, einnig t.d. Bandaríkin og Kína, hafa tekið vel í þau markmið að gerður verði alþjóðlegur bindandi samningur um takmörkun á notkun kvikasilfurs árið 2013.
Norðurlöndin og Norræna ráðherranefndin hafa fengið góð viðbrögð við því starfi sem stendur yfir í tengslum við notkun kvikasilfurs á Norðurlöndum. Sameinuðu þjóðirnar heiðruðu ráðherranefndina fyrr í vikunni með æðstu viðurkenningu kvikasilfursamtaka sem UNEP umhverfisáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur stofnað til.
Samningafundurinn í Stokkhólmi, sem fjármagnaður var af Norrænu ráðherranefndinni, var sá fyrsti af fimm í aðdraganda nýs alþjóðlegs samnings. Næsti samningafundur verður haldinn í Chiba í Japan í byrjun árs 2011.
