Document Actions

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 Verðlaunahafi ársins fundinn

Breska leikkonan Helen Mirren tilkynnti í dag hverjir hljóta Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2011.

Oct 17, 2011

Sænska kvikmyndin SVINALÄNGORNA (BEYOND)  er besta norræna kvikmyndin 2011 og því hljóta Pernilla August leikstjóri myndarinnar, og Lolita Ray  meðhandritshöfundur hennar og framleiðendurnir Helena Danielsson og Ralf Karlsson Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessu ári. Heiðursformaður dómnefndar, Helen Mirren, greindi frá þessu á fréttamannafundi í Kaupmannahöfn.

Rökstuðningur dómnefndar, sem skipuð er kvikmyndasérfræðingum frá öllum norrænu ríkjunum og Helen Mirren,  er eftirfarandi:
“Beyond” er harkalegt og margslungid drama, hrátt og fíngert í senn, myrkt en um leid thrungid birtu.
Pernille August hefur, ásamt félögum sínum, næmt auga fyrir smáatridum og tilbrigdum og tekst ad láta hid flókna sýnast audvelt. Leikurinn er stórkostlegur, og sídast en ekki síst thá er Beyond nokkud afar sjaldgæft: persónuleg og frumleg leikgerd af metsölubók.”

SVINALÄNGORNA  var frumsýnd í Svíþjóð í desember í  fyrra og fékk Pernilla August gagnrýnendaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 2010. Auk þess hefur myndin verið verðlaunuð á kvikmyndahátíðum um allan heim.  Kvikmyndin hlaut þrjú eftirsóknarverð Guldbagge verðlaun og hún er einnig tilnefnd sem framlag Svía til Óskarsverðalunanna í flokki erlendra kvikmynda.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn 2002, og fest í sessi árið 2005. Þau hafa síðan verið veitt árlega norrænni kvikmynd sem þykir uppfylla ströngustu kröfur um listræn gæði,  byggja á norrænni menningu og vera einstök hvað varðar frumleika í útfærslu. Kvikmyndin á einnig að sýna listræna nýsköpun og stuðla að framþróun í kvikmyndalistinni með því að sameina hinar ýmsu hliðar hennar í sannfærandi og heilsteyptu verki.
Kvikmyndaverðlaunin nema 350.000 dönskum krónum, jafnvirði um 7,5 milljóna íslenskra króna. Þau skiptast jafnt milli leikstjóra, handritshöfundar og framleiðanda, til að sýna að kvikmyndin er listform sem krefst náins samstarfs þessara þriggja aðila.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru ein af  föstum verðlaunum Norðurlandaráðs, aðrar eftirsóttar viðurkenningar eru  bókmenntaverðlaunin, tónlistarverðlaunin og náttúru- og umhverfisverðlaunin. Öll verða þessi verðlaun afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Kaupmannahöfn 2. nóvember.


UM DÓMNEFNDINA:
Í dómnefnd Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs sitja heiðursfulltrúinn og formaður dómnefndar Helen Mirren, kvikmyndagagnrýnandinn Per Juul Carlsen (Danmörku), upplýsingastjórinn Outi Heiskanen (Finnlandi), Sif Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri (Íslandi), Silje Riise Næss verkefnisstjóri (Noregi), Fredrik Sahlin kvikmyndagagnrýnandi  (Svíþjóð) og Hanne Palmquist framkvæmdastjóri (Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum).

FYRRI VERÐLAUNAHAFAR:
Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn fer með umsýslu kvikmyndaverðlaunanna. Áður hafa þau verið veitt Aki Kaurismäki fyrir MAÐUR ÁN FORTÍÐAR (2002), Per Fly (2005) fyrir MORÐIÐ, Josef Fares (2006) fyrir ZOZO, Peter Schønau Fog (2007) fyrir LISTIN AÐ GRÁTA Í KÓR, Roy Andersson fyrir ÞIÐ SEM LIFIÐ (2008) Lars von Trier fyrir ANTICHRIST (2009) og Thomas Vinterberg fyrir SUBMARINO (2010).

Upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs:
www.nordiskrådsfilmpris.com   www.nordiskfilmogtvfond.com


Til ritstjórnar:
Hægt er að hlaða niður myndum af verðlaunakvikmyndinni auk nýrra ljósmynda af verðlaunahöfunum þremur á www.nordiskrådsfilmpris.com, en þar má einnig finna myndskeið ásamt ljósmyndum og upplýsingum um aðrar tilnefndar myndir.
Á sama stað verða sýnd myndskeið með Helen Mirren og Fredrik Sahlin þegar þau tilkynna hver hlýtur verðlaunin í ár.

Hægt er að óska eftir aukaljósmyndum hjá ljósmyndastofunum www.polfoto.dk og www.scanpix.dk.

Hægt er að hlaða niður kynningum og stuttum brotum í útsendingargæðum úr kvikmyndinni sem verðlaunuð verður og þeim sem tilnefndar voru á:
Vefsíða: http://post.nordiskfilmogtvfond.com:8000/Login  Notendanafn: ncfp_press2011 / aðgangsorð: ncfp

Nánari upplýsingar um kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 veitir:
Freddy Neumann, Neumann PR & Kommunikation, sími. +45 2046 7846 eða  neumann@mail.dk

KVIKMYNDAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2011
SVÍÞJÓР   

SVINALÄNGORNA (BEYOND)

ÚTDRÁTTUR
Morgun einn rétt fyrir jól fær Leena (34) símtal frá sjúkrahúsi í bænum sem hún ólst upp í. Henni er sagt að móðir hennar sé að deyja. Fréttirnar verða til þess að unga konan fer til að hitta móður sína í fyrsta sinn frá því hún var fullorðin. Leena hefur barist til að losna við sorgina vegna glataðrar, myrkrar æsku sinnar.  Hún neyðist nú til að takast á við fortíðina til að halda lífinu áfram.

UM KVIKMYNDINA
Beyond er fyrsta myndin sem sænska verðlaunaleikkonan Pernilla August leikstýrir. Myndin er byggð á metsölubókinni „Svinalängorna“ eftir Susanna Alakoski. Drakfilm sem keypt hafði kvikmyndaréttinn hafði samband við leikkonuna. Hún varð samstundis hrifin af frásögninni um harðneskjulegt uppeldi Leenu „vandann við að vera fátækur, frá öðru landi og ófær um að tala tungumálið“.
Í stað þess að segja söguna frá línulegu sjónarhorni, æsku Leenu, bætti August við sjónarhorni Leenu sem fullorðins einstaklings. Fyrir August fjallar myndin um að „ljúga að sjálfum sér og fólki í kringum sig“. „Þetta er sagan sem ég vildi segja um hvernig hægt er að ná niðurstöðu og hvernig hægt er að lifa lífinu áfram þrátt fyrir fortíðina“, segir leikkonan sem nú er orðin leikstjóri. August hafði séð Noomi Rapace leika Medea á sviði og réði hana áður en hún varð fræg fyrir Millenium myndirnar.
Myndin var heimsfrumsýnd á gagnrýnendaviku í Feneyjum 2010 þar sem hún hlaut Audience-Critics Week verðlaunin og UNESCO-Hope verðlaunin. Myndin hefur síðan hlotið mörg önnur eftirsótt verðlaun eins og NDR Best Feature Film í Lübeck and þrenn Guldbagge verðlaun fyrir bestu leikstjórn, bestu leikkonu í aukahlutverki (Outi Mäenpää frá Finnlandi) og bestu klippingu (Åsa Mossberg).
Um 650.000 manns sáu myndina í Skandínavíu (nær 400.000 í Svíþjóð) og var hún ein metsölumynda Nordisk Film í Skandínavíu eftir Millenium-þríleikinn.

PERNILLA  AUGUST LEIKSTJÓRI – HANDRITSHÖFUNDUR
Pernilla August sem fædd er 1958 í Stokkhólmi er ein af þekktustu leikkonum Svía á alþjóðavettvangi. Hún starfaði mikið með sænska meistaraleikstjóranum Ingmar Bergman sem fyrst leikstýrði henni í Óskarsverðlaunamyndinni Fanný og Alexander (1982). ). Hún hlaut verðlaun sem besta leikkona fyrir leik sinni í Den goda viljan í leikstjórn Bille August, eftir handriti Bergmans á kvikmyndahátíðinni í Cannes 1992. Samstarf hennar og Bergmans hélt áfram í sjónvarpi (In the Presence of a Clown) og í konunglega leikhúsinu í Stokkhólmi (Brúðuhúsið, The Winter’s Tale, María Stuart og Ghost).

August sló í geng í Hollywood þar sem hún lék móður Anakin geimgengils í  myndum George Lucas, Star Wars Episode 1 -The Phantom Menace (1999) og  Star Wars Episode 2 -Attack of the Clones (2002) Meðal fjölmargra skandínavískra leikstjóra sem hún hefur unnið með eru Per Fly (Morðið), Kristian Petri (Details), og Björn Runge (Daybreak, Mouth to Mouth). Árið 2009 lék hún í fyrstu kvikmyndum leikstjóranna Jörgen Bergmark (A Rational Solution) og Håkon Liu (Miss Kicki) en báðar myndir hlutu verðlaun. Væntanlegar sænskar myndir sem hún mun leika í eru Truth or Consequence eftir  Jan Troell and Call Girl  eftir Mikael Marcimain.
Beyond er frumraun August sem  handritshöfundar/leikstjóra.  

LOLITA RAY - HANDRITSHÖFUNDUR
Lolita Ray er fædd í Stokkhólmi þann 21. febrúar, 1957. Faðir hennar er indverskur og móðirin sænsk. Handrit hennar að Beyond, sem byggt er á metsölubók Susanna Alakoski, er frumraun hennar sem handritshöfundur. Hún er söngvari og lagasmiður í hljómsveitinni Brittakaren og einnig sjálfstæður tónlistarmaður.

HELENA DANIELSSON – FRAMLEIÐANDI
Helena Danielsson er fædd árið 1966. Hún nam þýsku og bókmenntir í Austurríki og er með próf í sálfræði og fjölmiðlun frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Hún stofnaði framleiðslufyrirtæki sitt Hepp Film árið 2003, eftir 15 ára starf í skandínavískum og evrópskum kvikmyndaiðnaði.
Kjarnastarfsemi Hepp Film er gerð og framleiðsla kvikmynda í fullri lengd, leikinna sjónvarpsþátta og heimildarmynda í samstarfi við verðlaunað evrópskt hæfileikafólk.  Meðal nýlegra dæma er A Rational Solution eftir Jörgen Bergmarksem hlaut Arte France Cinema Award/CineMart (2007) og heimildarmyndin Smiling in a Warzone, sem tilnefnd var til Emmy verðlauna árið 2007.
Næsta stóra verkefni sem er í bígerð er enn ónefnd mynd um sænska boxarann Bo Högberg og kabarett söngkonuna Anita Lindblom, með Ola Rapace og Noomi Rapace í aðalhlutverkum. Hollywood leikstjórinn Catherine Hardwicke (Twilight, Thirteen) tengist næstu mynd sem gerð verður á ensku.

RALF KARLSSON – FRAMLEIÐANDI
Ralf Karlsson er fæddur í Stokkhólmi árið 1953. Hann útskrifaðist frá kvikmyndaháskólanum í Stokkhólmi árið 1980. Árið eftir hóf hann störf sem framleiðandi hjá Drakfilm, fyrirtæki sem stofnað var árið 1974. Hann er nú framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Drakfilm hefur framleitt 16 kvikmyndir í fullri lengd, sjö sjónvarpsþáttaraðir, rúmlega 1000 auglýsingar, upplýsingamyndir, fræðslumyndir, tónlistarmyndbönd og heimildarmyndir. Meðal þeirra eru glæpaþættirnir Honest Blue Eyes (1977), Sinkadus (1980) og kvikmyndin The Man from Majorca eftir Bo Widerberg (1984).

Tengt efni