Kynning á Norðurlöndum í Kína
Á morgun, föstudag, verður haldinn norrænn-kínverskur orku- og loftslagsdagur á heimssýningunni í Sjanghæ. Markmiðið er að styrkja samstarf Kína og Norðurlanda í hinum alþjóðlegu orku- og loftslagsmálum. Fjöldi ráðherra verður á staðnum, til að kynna Norðurlöndin.
Karen Ellemann, umhverfis- og samstarfsráðherra Danmerkur tekur þátt í norræna-kínverska orku- og loftslagsdeginum í Sjanhæ á föstudag.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Auk þeirra umfangsmiklu viðburða sem hvert land fyrir sig stendur fyrir á heimssýningunni í Sjanghæ, kynna Norðurlöndin sig einnig sem eitt svæði, með fjölda viðburða. 25. júní verður haldinn norrænn-kínverskur orku- og loftslagsdagur. Þá mun Norræna ráðherranefndin kynna Norðurlöndin, færni og tækifæri sem fyrir hendi eru og hvetja til aukins samstarfs milli aðila í Kína og í norrænu ríkjunum.
Viðburðirnir verða haldnir í norrænu skálunum á sýningunni og verður þar boðið upp á fyrirlestra og umræður sérfræðinga og stjórnenda jafnt úr opinbera geiranum og viðskiptalífinu. Meðal þátttakenda má nefna Karen Ellemann umhverfis- og samstarfsráðherra Danmerkur, Jan Vapaavuori húsnæðis- og samstarfsráðherra Finnlands, Palle Christiansen fjármála- og samstarfsráðherra Grænlands, Johan Tiedemann ráðuneytsstjóri sænska samstarfsráðherrans, Cristina Husmark Pehrsson og Halvard Ingebrigtsen og Trond Giske ráðuneytisstjóra viðskipta- og iðnaðarráðuneytisins í Noregi. Auk þeirra Jiang Kejun framkvæmdastjóri orkurannsóknastofnunarinna á Chinese National Development and Reform Commission, Bo Diczfalusy stjórnanda IEA stofnunar um sjálfbæra orkustefnu og tækni og Heidi Hiltunen umhverfisráðgjafa í sendinefnd ESB í Kína.
Norræni-kínverski orku- og loftslagsdagurinn er hluti af hnattvæðingarátaki sem norrænu forsætisráðherrarnir ýttu úr vör til að takast á við hnattrænar áskoranir. Ráðherrarnir hittust síðast á árlegu hnattvæðingarþingi sem haldið var um miðjan maí. Danir héldur hnattvæðingarþingið að þessu sinni, en þeir fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2010. Á þinginu var sjónum einkum beint að grænum hagvexti og hnattrænum orku- og loftslagsáskorunum.
Fjöldi viðtala sem tekin voru á hnattvæðingarþinginu 2010 eru aðgengileg, meðal annars við Karen Ellemann umhverfis- og samstarfsráðherra Danmerkur.
Nánar um hnattvæðingarþingið 2010
Nánar um norræna hnattvæðingarstarfið
Skráning, upplýsingar og nýjasta dagskrá norræna-kínverskra orku- og loftslagsdagsins eru á: www.nordicenergy.net/china
Fréttamenn eru velkomnir á morgunfund í sýningarsal Finnlands milli kl. 09.00 og 11.30, þar munu taka til máls meðal annarra ráðherrar og sérsfræðingar. Athugið! Skráning .
Tengiliðir
Hafið samband við Heidi Hautajärvi, hh@nordicenergy.net +47 95 700 699 Benjamin Donald Smith, bs@nordicenergy.net +47 90 406 203
