Lars Løkke Rasmussen: Mikilvægt að viðhalda norrænum þrýstingi á ESB
Á leiðtogafundi norrænna þingmanna og forsætisráðherra á Norðurlandaráðþingi í Stokkhólmi, ítrekaði Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Dana, að Norðurlönd hafi átt þátt í að móta evrópska málefnaskrá, ekki síst í tengslum við loftslagsmál:
Það er ekki síst vegna pólitísks þrýstings frá Norðurlöndunum að loftslagsvandinn er kominn efst á dagskrá í ESB. Við eigum að beita sameiginlegum norrænum þrýstingi, sagði Rasmussen.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
„Það er ekki síst vegna pólitísks þrýstings frá Norðurlöndunum að loftslagsvandinn er kominn efst á dagskrá í ESB. Við eigum að beita sameiginlegum norrænum þrýstingi”, sagði Rasmussen.
Henrik Dam Kristensen (S) fulltrúi í Norðurlandaráði lýsti áhyggjum af því að ESB sýndi ekki nægilegan metnað gagnvart loftslagssáttmálanum í Kaupmannahöfn og vill ekki að samningurinn verði lagalega bindandi, heldur láta pólitískan samning nægja.
Lars Løkke Rasmussen sagði önnur norræn ríki væru mikilvægustu bandamennirnir í baráttunni fyrir metnaðarfullum alþjóðlegum loftslagssamningi, en þar er næsta skref fundur í Evrópuráðinu á fimmtudag.
„Það er álit mitt að það sé ósk leiðtoga heimsins að nýr pólitískt bindandi loftslagssamningur náist í Kaupmannahöfn - bindandi pólitískur samningur sem er virkur frá fyrsta degi”.
Løkke Rasmussen vakti einnig athygli á Eystrasaltsstefnu ESB sem raunverulegu dæmi um hvernig Norðurlönd mynda virðisauka í evrópsku samhengi.
„Eystrasaltsstefnan er einnig dæmi um að Norðurlöndunum hefur tekist að beita þrýstingi og að orðið hefur til umhverfisvænt innihald, sagði forsætisráðherrann.
