Document Actions

Látum almenning kjósa forseta Norðurlandaráðs

Þjóðkjörinn forseti ætti að stýra Norðurlandaráði. Þetta er mat Norðurlandaráðs æskunnar (UNR), en forsætisnefnd þess fundar í Ósló þessa vikuna. Hugmyndin byggir meðal annars á tillögum sænska sagnfræðingsins Gunnars Wetterberg um norræna sambandsríkið.

13/04 2010
Minna Lindberg

„Framkvæmdamáttur Norðurlandaráðs er ekki nægur eins og sakir standa. Fáir vita hvað verið er að ræða í ráðinu og hvaða ákvarðanir eru teknar. Auk þess er ákvarðanaferlið hægfara og árangur af þeim ákvörðunum sem teknar eru ekki nægilega mikill.

Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten

„Hugmyndir Wetterbergs um norrænt sambandsríki eru áhugaverðar en ekki mjög líklegar til framkvæmdar“, segir Minna Lindberg forseti UNR.

„En kjör  forseta Norðurlandaráðs í öllum norrænu ríkjunum er vel framkvæmanlegt“, heldur hún áfram.

UNR telur að norrænn þingforseti myndi virka sem hvatning og aflvaki í  norrænu samstarfi. Þá myndi stjórn Norðurlandaráðs verða  að standa fyrir svörum gagnvart öllum Norðurlandabúum og íbúum sjálfstjórnarsvæðanna og sanna að hún er traustsins verð.

„„Framkvæmdamáttur Norðurlandaráðs er ekki nægur eins og sakir standa. Fáir vita hvað rætt er í ráðinu og hvaða ákvarðanir eru teknar. Auk þess er ákvarðanaferlið hægfara og árangur af þeim ákvörðunum sem teknar eru ekki nægilega mikill,“ segir Minna Lindberg.

UNR telur ónauðsynlegt að breyta  grunnákvarðanaferli Norðurlandaráðs.  Fulltrúar í nefndum sem nú taka ákvarðanir ættu áfram að vera uppistaðan í þingi Norðurlandaráðs. Breytingin fælist í því að starfinu væri stýrt af forseta sem meirihluti norrænna kjósenda hefði kosið.

Afar mikilvægt er að tryggja  að sjálfstjórnarsvæðin og litlu löndin standi jafnfætis öðrum í framtíðinni. Til þessa verður að sjálfsögðu að taka tillit þegar reglur um kjör forseta eru ákveðnar“, segir í yfirlýsingu Norðurlandaráðs æskunnar.

Fundir UNR eru haldnir í tengslum við aprílfundi Norðurlandaráðs í Ósló.

Skráning

Aðeins skráðir þátttakendur geta setið fundinn. Sendið ósk um skráningu til Henrik Killianders á netfangið heki@norden.org

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Tengt efni