Leiðtogafundur forsætisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í Kaupmannahöfn
Alþjóðamál voru efst á baugi á árlegum leiðtogafundi (NB8) forsætisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsrikjanna. Efnahagsvandinn í Evrópu var fyrst tekinn til umræðu.
„Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á samstarf við bæði Norðurlönd og Eystrasaltsríkin", sagði Helle Thorning Schmidt á fyrsta sameiginlega fundi sínum með forsætisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
Á fundi forsætisráðherranna á mánudag var hin alvarlega efnahagskreppa í Evrópu í brennidepli.
Á fréttamannafundi sem haldinn var í kjölfar fundarins sagði finnski forsætisráðherrann, Jyrki Katainen, að Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin væru vel í stakk búin til að takast á við efnahagsvandann:
„Við búum í heimshluta sem hefur staðið sig vel efnahagslega, og við erum öll í sama báti, sama hvaða gjaldmiðil við notum. En við verðum að leggja hart að okkur til að halda sjó, sérstaklega ef við ætlum að halda áfram að laða að fjárfestingar", sagði finnski forsætisráðherrann. Finnar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2011.
Helle Thorning Schmidt, forsætisráðherra Dana notaði tækifærið á fyrsta fundi sínum með starfssystkinum sínum frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum til að kynna forgangsmál Dana formennskutíma þeirra í ESB á næsta ári. Þar verður skuldavandi Evrópuríkja stórt verkefni™:
„Við leggjum mikla áherslu á að leysa þann vanda sem skuldavandinn hefur í för með sér, á það að styrkja efnahag landanna og að halda aðildarríkjum saman, þannig að við vinnum saman sem 27 aðildarríki", sagði Helle Thorning Schmidt.
Danski forsætisráðherrann notaði jafnframt tækifærið til að ítreka hve mikilvægt samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna væri:
„Okkur finnst bæði norræna samstarfið og samstarfið við ríki Eystrasaltsins mjög mikilvægt. Því meira sem við tölum saman, þeim mun betra verður samstarfið. Norrænt samstarf er mjög gagnlegt. Ég er því afar ánægð með þennan fyrsta sameiginlega fund með ykkur. Það er alveg víst að ný ríkisstjórn í Danmörku mun setja norrænt samstarf í forgang", sagði Thorning Schmidt.
Utanríkismál sem komu til umræðu á fundi forsætisráðherranna snerust meðal annars um Líbýu, Sýrland og Palestínu.
Myndband: Fréttamannafundur - 1. hluti
Myndband: Fréttamannafundur - 2. hluti
Tengiliðir
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org
