Leiðtogafundur Norðurlanda og Evrópuríkja í Ósló um innflytjendur í atvinnuleit
Fjallað verður um aðflutning fólks í atvinnuleit og sveigjanlegan vinnumarkað á fundi Norðurlandaráðs, Benelux-þingsins og Eystrasaltsráðsins í Ósló, þriðjudaginn 13.apríl. Fulltrúar í Norðurlandaráði munu einnig heimsækja fangelsi og sjúkrahús á milli funda 13.-14. apríl.
Hanne Bjurstrøm atvinnumálaráðherra Noregs mun á fundum sínum með þingmönnunum fjalla um hvernig Evrópuríki geta bætt samkeppnishæfni sína eftir fjármalakreppuna með sveigjanlegri vinnumarkaði, þar sem vel er hugað að hagsmunum allra starfsmanna. Fundurinn verður haldinn í norska Stórþinginu.
- Lengi hefur verið litið á erlent vinnuafl sem vandamál og einblínt á það sem miður fer. Í Ósló munum við einnig ræða aðflutning fólks í vinnuleit frá jákvæðu sjónarhorni og meðal annars ræða hvernig það getur stuðlað að því að efla samkeppnishæfni landa okkar að lokinni kreppu, segir Helgi Hjörvar, forseti Norðurlandaráðs, sem hlakkar til að hitta starfssystkin sín frá Norðurlöndum, Eystrsaltsríkjunum og Benelux löndunum í Ósló.
Norrænu þingmennirnir eru með þéttskrifaða dagskrá á aprílfundunum í Ósló. Velferðarnefndin, sem á þessu ári leggur sérstaka áherslu á málefni aldraðra, mun heimsækja deild fyrir sjúklinga með minnisglöp á Ulleval sjúkrahúsinu miðvikudaginn 14. apríl. Sama dag fundar nefndin með Anne-Grete Strøm-Erichsen heilbrigðis- og umönnunarráðherra Noregs.
Borgara- og neytendanefndin heimsækir Halden fangelsið þann 14. apríl, en það var nýlega tekið í notkun. Fangelsið telst vera með þeim nútímalegustu í Evrópu en í því er lögð áhersla á starfsþjálfun, menntun og heilsurækt til þess að afstýra því að fangar leiðist út í afbrot á ný. Meðferð fanga á Norðurlöndum er eitt af forgangsmálum Borgara- og neytendanefndarinnar á árinu og munu þingmennirnir nota heimsóknina sem tilefni til að meta hvort móta eigi sameiginlega norræna stefnu um umönnun fanga.
Hver er framtíð norrænnar almannaþjónustu? Þessa spurningu mun Menningar- og menntanefndin ræða á fundi sínum síðdegis á miðvikudag.
Þingmennirnir í Norðurlandaráði hittast í Ósló til þess að sitja aprílfundi ráðsins. Þingmenn úr öllum flokkahópum taka þátt í fundunum.
Tengiliðir
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
