Document Actions

Leiðtogafundur Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Reykjavík

Hvíta-Rússland og ESB-samstarf norrænu ríkjanna og Eystrasaltsríkjanna eru á dagskrá leiðtogafundar Norðurlandaráðs og Eystrsaltsráðins í Reykjavík fimmtudaginn 8. desember.

Nov 30, 2011
Reykjavik
Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/ norden.org

Fundurinn er haldin í framhaldi af fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs og munu fundarmenn m.a. ræða hvort fara skuli fram á árlega ESB-skýrslu frá ríkisstjórnum Norðurlanda.

Forsætisnefndin og Eystrasaltsráðið munu einnig ræða hvort Norðurlönd og Eystrasaltsríkin eigi sameiginlegra hagsmuna að gæta í ESB. Samstarf Norðurlanda og Eystrsaltsríkjanna um ákveðin ESB-málefni gæti styrkt áhrif landanna á vettvangi ESB.

Ástandið í Hvíta-Rússlandi er einnig mikilvægt umfjöllunarefni. Norðurlandaráð og Eystrasaltsráðið hafa síðan 2007 átt í viðræðum við fulltrúa stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnina í Hvíta-Rússlandi. Eftir uppþotin í kosningabaráttunni í Hvíta-Rússlandi í desember 2010 og harkaleg viðbrögð stjórnvalda hafa viðræðurnar legið niðri. Á fundinum á Íslandi munu fulltrúar meta til hvaða aðgerða er hægt að grípa gagnvart stjórnvöldum Hvíta-Rússlandi.

Einnig verður þess minnst að 20 ár eru liðin frá því að Eistland, Lettland og Litháen lýstu yfir sjálfstæði Að því tilefni mun Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands sitja fundinn. Hann mun sýna gestunum Höfða, þar sem Ísland, fyrst allra landa, viðurkenndi með yfirlýsingu sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.

Forsætisnefnd Norðurlandaráðs fundar í Þjóðmenningarhúsinnu frá kl. 9.00 til 15.00 fimmtudaginn 8. desember. Árlegur fundur með Eystrasaltsráðinu hefst sama dag á sama stað kl. 15.30.

Tengiliðir

Tina Bostrup
Sími +45 33 96 04 52
Tölvupóstur tib@norden.org

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Torkil Sørensen
Sími +45 33 96 04 46
Tölvupóstur ts@norden.org

Tengt efni