Document Actions

Leikkonan Helen Mirren verður formaður dómnefndar Kvikmyndaverðlauna Norðurldandaráðs

Óskarsverðlaunahafinn, lafði Helen Mirren, mun tilkynna um sigurvegara þessara virtu verðlauna í Kaupmannahöfn þann 17. október 2011 og í kjölfarið ræða við leikstjóra sigurmyndarinnar.

12/09 2011
Helen Mirren
Ljósmyndari
Giles Keyte

Þetta mun vera í fyrsta sinn sem alþjóðlegri kvikmyndastjörnu hefur verið boðið sæti í dómnefnd virtustu kvikmyndaverðlauna á Norðurlöndum. Haft er eftir Hanne Palmquist, framkvæmdastjóra Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins að Mirren sé hinn fullkomni formaður dómnefndarinnar. "Það er mikilll heiður að Helen Mirren skulu slást í lið með okkur í Kaupmannahöfn. Hennar gríðarlega reynsla verður ómetanleg þegar kemur til þess að dæma myndirnar fimm og velja sigurvegarann. Ein hæfleikaríkasta og virtasta leikkona heims veit hvað þarf í handritagerð, leikstjórn og framleiðslu til að skapa framúrskarandi kvikmynd."

Helen Mirren mun sitja í dómnefndinni ásamt kvikmyndagagnrýnandanum Per Juul Carlsen (Danmörk), samskiptastjóranum Outi Heiskanen (Finnland), framvæmdastjóranum Sif Gunnarsdóttur (Ísland), ritstjóranum Silje Riise Næss (Noregur), kvikmyndagagnrýnandanum Fredrik Sahlin (Svíþjóð) og Hanne Palmquist. Eftir að sigurvegarinn hefur verið tilkynntur munu Mirren og leikstjóri sigurmyndarinnar sitja fyrir svörum í pallborðsumræðum á The Grand Theatre, sem Fredrik Sahlin mun stjórna.

Helen Mirren er ein þekktasta og virtasta leikkona heims og spannar ferillinn fjölda verka á sviði, hvíta tjaldinu og í sjónvarpi. Hún hefur unnið fjölda verðlauna fyrir kraftmikil og fjölbreytt hlutverk og má þar nefna Óskarsverðlaun árið 2007 fyrir hlutverk sitt sem Elisabeth II í The Queen. Hún var valin besta leikkonan á Cannes árið 1984 fyrir myndina Cal og árið 1995 fyrir The Madness of King George. Aðrar myndir sem hafa fyrir sigurför um heiminn eru til dæmis Gosfork Park (2002) og The Last Station (2010), sem aflaði henni tilnefningu til Óskarsverðlauna. Meðal hennar nýjustu kvikmynda eru The Door eftir István Szabó, Brighton Rock eftir Roan Joffe, The Debt eftir John Madden og Phil Spector, nýjasta mynd David Mamet, þar sem hún leikur á móti Al Pacino.

Í sjónvarpi hefur hún slegið í gegn á heimsvísu sem Jane Tennisson í verðlaunaþáttunum Prime Suspect. Nýjasta hlutverk hennar í sjónvarpi var í Elisabeth I en fyrir frammistöðu sína þar hlaut hún tilnefningu til Emmy og Golden Globe verðlauna.

Myndirnar fimm sem tilnefndar eru í ár eru Sannleikurinn um karla frá Danmörku, Góði sonurinn frá Finnlandi, Brim frá Íslandi, Osló, 31. ágúst frá Noregi og Svínastían frá Svíþjóð.

Verðulaunaféið, samtals 350.000 danskar krónur deilast jafnt á milli leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda sigurmyndarinnar. 2. nóvember verða þau afhent við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn á Norðurlandaráðsþingi, en þá verða einnig afhent Bókmenntaverðlaun, Tónlistarverðlaun og Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs. Fyrrum sigurvegarar Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs eru meðal annars Aki Kaurismäki (The Man without a Past 2002), Roy Andersson (You the Living 2008), Lars von Trier (Antichrist 2009) og Thomas Vinterberg (Submarino 2010).

Nánari upplýsingar um Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2011:

www.nordiccouncilfilmprize.com

www.nordiskfilmogtvfond.com

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Hanne Palmquist
Sími +47 64 00 60 80
Tölvupóstur hanne@nftf.net