Little Wing hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2017

01.11.17 | Fréttir
Vinnare av Nordiska rådets filmpris 2017
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org
„Little Wing“ (Tyttö nimeltä Varpu) eftir finnska leikstjórann og handritshöfundinn Selmu Vilhunen og framleiðendurna Kaarle Aho og Kai Nordberg hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2017.

Selma Vilhunen, Kaarle Aho og Kai Nordberg tóku við verðlaununum að upphæð 350 þúsund DKK. Verðlaunahafi síðasta árs, Thomas Robsahm, afhenti verðlaunin við verðlaunaathöfn Norðurlandaráðs í Finlandia-húsinu í Helsinki.

Rökstuðningur dómnefndar:

„Í Little Wing fangar Selma Vilhunen stórbrotnar og sammannlegar tilfinningar með látlausum stílbrögðum og sýnir að sem leikstjóri og handritshöfundur býr hún yfir óvenju mikilli næmni. Vilhunen leikur sér á hugvitsamlegan hátt að dæmigerðri framsetningu á stúlkum og ungum konum í kvikmyndum og í hvert sinn sem áhorfandinn skynjar yfirvofandi ógn við söguhetjuna Varpu lætur Vilhunen hana sveigja fimlega hjá klisjunum, bæði í bókstaflegri og yfirfærðri merkingu. Varpu er indæl og dugmikil stelpa sem flakkar um í heimi þar sem persónurnar fá að vera raunverulegar manneskjur með góðar og slæmar hliðar, og þar sem umhverfið í kringum þær gegnir hlutverki leiktjalda en fær aldrei að verða ráðandi þema. Í Little Wing hefur dómnefndin séð svipmyndir hreinnar orku og kvikmyndalegs mikilfengleika, og okkur langar að sjá meira.“