Document Actions

Lög gegn kaupum á kynlífi virka

31/10 2004

Konur sem háðar eru fíkniefnum stunda ekki lengur vændi heldur hafa þær sóst eftir aðstoð eftir að lög sem banna kaup á kynlífsþjónustu voru sett í Svíþjóð árið 1999. Þetta sagði Anders Gripenberg lögregufulltrúi í Stokkhólmi á fundi þar sem fjallað var um mansal í kynferðislegum tilgangi, sem haldinn var í Stokkhólmi á sunnudaginn. Það var vinstrisósíalistíski hópurinn í Norðurlandaráði sem stóð fyrir fundinum.
- Þær konur sem háðar eru fíkniefnum hafa ekki getað notað netið eða annað slíkt til þessa að stunda iðju sína sagði Gripenlöf og ber saman Stokkhólm og Ósló og Helsinki en þar hefur götuvændi aukist stórlega.

Marianne Eriksson, fyrrum þingmaður á Evrópuþinginu fyrir Vinstriflokkinn, benti á þá staðreynd að aðeins 800 konur eru flæktar í mansal í kynferðislegum tilgangi í Stokkhólmi en reiknað er með að þær séu 15.000 í Finnlandi.

Trine Lund Jenssen frá verkefninu ''Stöðvum verslun með konur'' í Kaupmannahöfn mælti gegn því að vændi væri leyft því hún telur að við það aukist fjöldi þeirra kvenna sem byrja. Hún lýsti einnig eftir fleiri sakfellingum fyrir mansal, en einungis einn dómur hefur fallið í Danmörku.
-Það er enginn munur á vændi og mansali á milli landa sagði Trine Lund Jenssen. Mansal milli landa er einfaldlega alheimsvætt vændi.