Loftslagsfjármögnun og norrænt samstarf á COP21 – nýtt tölublað af „Green Growth the Nordic Way“

11.09.15 | Fréttir
Nordic Climate Solutions 2009
Photographer
Johannes Jansson/norden.org
Í þessu tölublaði veftímaritsins „Green Growth the Nordic Way“ fjöllum við um samstarf Norðurlanda um loftslagsfjármögnun, annars vegar á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu og hins vegar á heimsvísu. Við segjum einnig frá framlagi Norðurlanda til loftslagsviðræðna Sameinuðu þjóðanna í aðdraganda COP21.

Norræna ráðherranefndin stendur fyrir ýmsum viðburðum í aðdraganda COP21 í París undir yfirskriftinni „New Nordic Climate Solutions“.

Þetta tölublað „Green Growth the Nordic Way“ er hið fyrsta af þremur sem fjalla um ákveðna þætti í starfi Norrænu ráðherranefndinnar að umhverfismálum nú í haust. Hægt er að lesa nýja tölublaðið á vefnum www.nordicway.org.   

Í næstu tölublöðum „Green Growth the Nordic Way“ verður sagt frá starfi Norrænu ráðherranefndarinnar að loftslagsmálum fram að og eftir COP21, þar á meðal um viðburð á vegum ráðherranefndarinnar sem nefnist „Nordic Efficiency“ og haldinn verður í tengslum við umhverfismálasamkomuna „World Efficiency“ í París í október. Jafnframt verður sagt frá sameiginlegum sýningarskála Norðurlanda á COP21 í desember.

Finna má nánari upplýsingar um Nýjar norrænar loftslagslausnir á www.norden.org/nncs.