Document Actions

Loftslagsmál verða í brennidepli í formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni 2011

Finnar fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2011. Þeir hafa ákveðið að á formennskuári verði megináhersla lögð á alls slags aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Markmið er að styrkja stöðu Norðurlanda sem brautryðjenda og sameinaðs afls í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

02/11 2010
Maria Kiviniemi

Mari Kiviniemi forsætisráðherra Finna, kynnti formennskuáætlunina 2. nóvember á Íslandi. Hún lagði áherslu á þrjú svið: Aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum, verkefnatengingu við norræna hnattvæðingarferlið og grasrótarsamstarf .

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Mari Kiviniemi forsætisráðherra Finnlands kynnti formennskuáætluninaá þingfundi Norðurlandaráðs 2. nóvember í Reykjavík.

Í formennskuáætluninni er lögð áhersla á þrjú meginsvið, sem Finnar setja á oddinn:

Aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, verkefnatengingu við norræna hnattvæðingarverkefnið og grasrótarsamstarf sem grundvöll í norrænu samstarfi.

Við höfum í formennskuáætlun okkar kosið að leggja megináherslu á aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum. Við ætlum að halda áfram að byggja upp og kynna Norðurlönd sem brautryðjendur í loftslagsmálum og leggja áherslu á breitt og þverfaglegt samstarf til að finna visthæfar lausnir og stuðla að sjálfbærri samfélagsþróun", sagði Kiviniemi forsætisráðherra Finnlands.

Norðurlöndin geta á margan hátt vísað veginn vegna mikillar þekkingar og raunhæfar og árangurstengdra aðferða. Þessvegna höfum við valið að kynna áætlunina sem "Græn Norðurlönd - bregðast við loftslagsvanda".

Aðgerðir gegn loftslagsvandanum

Norðurlöndin hafa þekkingu og vilja til þess að vera í fararbroddi hvað varðar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og geta stuðlað að áframhaldandi starfi á því sviði hvort heldur er svæðisbundið eða á alþjóðavettvangi.

Myndband: Mari Kiviniemi forsætisráðherra og Jan Vapaavuori samstarfsráðherra sitja fyrir svörum um formennskuáætlun Finna.

Árangursríkar aðgerðir í loftslagsmálum krefjast víðtækrar samstöðu og samstarfs á öllum sviðum. Unnið verður að því að samþætta aðgerðir í loftslagsmálum öðrum ákvörðunum í atvinnulífinu og jafnframt verður rætt um hvernig auka megi lífsgæði samhliða því að dregið verði úr koltvísýringslosun.

Grænn hagvöxtur er leiðin fram á við.

Tenging við hnattvæðingarferlið

Finnar ætla að vinna áfram að svokölluðum hnattvæðingarverkefnum, þróa þau og leiða til lykta. Þáttur í því er að efla græna ímynd Norðurlanda á alþjóðavettvangi.

Norræna öndvegisrannsóknaáætlunin er sú stærsta á sviði rannsókna og nýsköpunar sem sett hefur verið á laggirnar í samstarfinu. Í henni er lögð áhersla á aðgerðir í loftslagsmálum, orkunýtingu og umhverfisvernd.

Finnar leggja áherslu á að rannsóknarsamfélagið fái aðgang að bestu tækjum og aðstöðu til að geta stundað öndvegisrannsóknir og verið í fararbroddi.

Finnar munu efna til hnattvæðingarþings eins og gert hefur verið árlega frá árinu 2008.

Á þeim þingum stýra forsætisráðherrarnir umræðum, en aðrir gestir eru fulltrúar atvinnulífs, fræðasamfélags, stjórnmála, fjölmiðla og ólíkra stofnana. Fjallað er um úrlausnarefni sem norrænu ríkin standa frammi fyrir og lausnir þeirra.

Grasrótarsamstarf er undirstaða norræna samstarfsins

Finnar munu leggja sig fram um að styðja frjáls félagasamtök og hlúa að víðtæku grasrótarsamstarfi

Nauðsynlegt er að virkja ungt fólk, ef norrænt samstarf á að blómstra áfram. Það má gera með því að efla norræna samkennd og tungumálaskilning.

Unnið verður áfram að því að afnema stjórnsýsluhindranir. Umboð nefndar um stjórnsýsluhindranir sem Ole Norrback stýrir hefur verið framlengt í þrjú ár, 2011-2013.

Áfram verður stutt við árangursríkt starf vettvangs um stjórnsýsluhindranir og leitast við að auka samræmingu milli landa til að afstýra því að nýjar hindranir verði til.

Tengiliðir

Antti Vänskä ráðgjafi forsætisráðherra um alþjóðamál, forsætisráðuneytinu +358 9 1602 2068

Tengt efni