Document Actions

Loftslagsráðstefna í skólanum – hlutverkaleikur fyrir norræna nemendur

Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Suður-Afríku í desember 2011 hittast þjóðaleiðtogar til að ræða lausnir á loftslagsvandanum. Norræna ráðherranefndin styrkir verkefnið „Loftslagsráðstefna í skólanum“, þar sem nemendur geta tekið að sér hlutverk þátttakenda á loftslagsráðstefnunni í Durban.

20/09 2011
Utsläpp
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Verkefnið er hlutverkaleikur fyrir nemendur í 9. bekk eða menntaskólanema og er verkefnið búið til af námsgagnamiðstöð í eðlisfræði við háskólann í Lundi í Svíþjóð, UNI•C í Danmörku og Tækniráðinu í Noregi. Hugsunin er að nemendur leiki þátttakendur á loftslagsráðstefnunni og að kennarinn verði ráðstefnustjóri.

Leikurinn hefur verið þýddur á sænsku, dönsku, norsku, finnsku, íslensku og ensku. Einnig er hægt að hafa svokallaðar "tvíhliða viðræður" við annan bekk t.d. frá öðru norrænu ríki á netinu. Allir bekkir sem taka þátt og skrá niðurstöður sínar og tillögur fyrir 20. nóvember 2011 taka jafnframt þátt í keppni um tvenn verðlaun að andvirði 5.000 danskra króna.

Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir styrkir verkefnið "Loftslagsráðstefna í skólanum 2011" og er það liður í stefnumörkun um sjálfbæra þróun 2011. Verkefninu er einnig ætlað að efla norrænt samstarf, samstöðu og tungumálaskilning.

Hægt er að nálgast efnið á http://miljolare.no/is/klimamote/

Lesa grein um norskan bekk sem unnið hefur með hugmyndina

Tengiliðir

Anders Raun UNI-C København Sími: +45 3587 8545 netfang: anders.raun@uni-c.dk

Tengt efni