Loftslagssamningar verða einnig að ná til jafnréttismála
Þátttakendur á norrænum leiðtogafundi um loftslagsmál, kyn og jafnrétti hvetja til þess að nýr loftslagssamningur Sameinuðu þjóðanna feli í sér ákvæði um jafnrétti. Bæði kynin verða að vera virk í aðgerðum sem miða að því að stemma stigu við loftslagsbreytingum.
Loftslagsbreytingar hafa ekki sömu áhrif á alla. Konur og karlar verða misjafnlega fyrir barðinu á þeim, hvort heldur er á Vesturlöndum eða í þriðja heiminum. Til dæmis voru 70-80 prósent þeirra sem fórust í flóðbylgjunni í Asíu árið 2004 konur.
Þar að auki hafa konur og karlar ólík áhrif á umhverfið, meðal annars vegna ólíkra neysluvenja. Karlar aka meira um á bíl en konur, og konur nota almenningssamgöngur meira en karlar. Því er mikilvægt að kynjasjónarmið og jafnrétti verði liður í nýjum loftslagssamningi sem til stendur að leggja lokahönd á í Kaupmannahöfn í desember. Þetta er ein af niðurstöðum Norræns leiðtogafundar í Kaupmannahöfn þann 2. febrúar.
Þátttakendur voru hvaðanæva að á Norðurlöndum og var þeim boðið af Norrænu ráðherranefndinni og norrænu jafnréttisráðherrunum til að setja fram tillögur að því hvernig efla megi alþjóðlegar aðgerðir vegna loftslagsvandans með því að samþætta jafnréttissjónarmið. Niðurstaðan var 15 tillögur sem snúa að öllu frá takmörkun á losun gróðurshúsalofttegunda til aðlögunar, fjárfestinga og tæknilausna.
Í yfirlýsingu frá fundinum eru stjórnmálamenn, samtök og einstaklingar hvattir til að axla ábyrgð svo skapa megi samfélag þar sem jafnrétti og sjálfbærni eru höfð að leiðarljósi.
Konur verða að eiga greiðan aðgang að ákvarðanaferlinu. Karlar og konur búa að ólíkri reynslu og en bera sömu ábyrgð á uppbyggingu framtíðarþjóðfélagsins. Því leggur Norræni leiðtogafundurinn til að norrænu ríkin vinni að því að fjölga konum í stjórnunarstöðum og stjórnum með því að setja kynjakvóta.
Í yfirlýsingunni segir einnig að mikilvægt sé að taka tillit til þekkingar, reynslu og þarfa beggja kynja þegar mikilvægar ákvarðanir eru teknar.
Þessi fundur er liður í framlagi Norðurlanda til loftslagsaðgerða Sameinuðu þjóðanna og er markmiðið að skapa umræður um jafnrétti og loftslagsbreytingar á Norðurlöndum í tengslum við þau norrænu fyrirtæki og samtök sem fulltrúarnir 45 koma frá.
Yfirlýsingin verður kynnt á þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York þann 5. mars, en þannig vilja Norðurlönd m.a. stuðla að framgangi norræna gilda í alþjóðlegu samhengi.
Norræna ráðherranefndin og ráðuneyti jafnréttismála í Danmörku stóðu fyrir Norræna leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn 2. febrúar.
