Loftslagsvandinn úti í kuldanum?
COP15 loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn er mönnum í fersku minni og nú er framundan COP17 í Suður-Afríku. Loftslagsvandinn er langt frá því að vera leystur, en svo virðist sem fjölmiðlar hafi gleymt honum. Hvar standa norrænu ríkin í aðdraganda COP17 og hvaða aðgerða hafa menn gripið til frá lokum COP15. Leitað er svara við þessum spurningum í síðasta tölublaði Analys Norden á þessu ári, sem kemur út á ensku að þessu sinni í tilefni af COP17.
Norræna ráðherranefndin tekur þátt í COP17, loftslagsráðstefnu SÞ í Durban. Hvar standa norrænu ríkin í loftslagsumræðunni?
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Norræna ráðherranefndin tekur einnig þátt í COP17-loftslagsráðstefnu SÞ í Durban.
Ráðherranefndin stendur annars vegar fyrir sýningu á norrænum orkulausnum: Norrænt orkusveitarfélag, og hins vegar fyrir tveimur hliðarviðburðum um norrænt verkefni sem hefur að markmiði að finna nýjar leiðir til að höndla með losunarkvóta fyrir koltvísýring.
Nánar um Norrænu ráðherranefndina á COP17.
Lesið nýjasta tölublaðið af Analys Norden á analysnorden.org.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
