Document Actions

Loka Svíar á norræna námsmenn?

Ætla Svíar að loka á námsmenn frá öðrum norrænum ríkjum? spyr norrænn þingmaður. Nýjar reglur um skráningu námsmanna í Svíþjóð sem taka gildi í haust, stríða gegn norrænum samningi um aðgang að æðri menntun.

03/05 2010
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir

Brýnt er að breyta reglunum, ef það gerist ekki geta afleiðingarnar orðið alvarlegar fyrir marga norræna námsmenn, segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Sænsk yfirvöld hafa takmarkað fjölda erlendra námsmanna. Það brýtur í bága við norrænan samning um aðgang að æðri menntun að mati Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur (A) sem á sæti í Norðurlandaráði.

Ég óttast að nýju reglurnar muni hafa þau áhrif að aðrir norrænir námsmenn muni ekki standa jafnfætis sænskum námsmönnum þegar skráningar hefjast í haust. Brýnt er að breyta reglunum að öðrum kosti geta afleiðingarnar orðið alvarlegar fyrir marga norræna námsmenn.

Sigríður Ingibjörg gagnrýnir Svía fyrir að reglurnar skuli fara á svig við norræna samninga Hún spyr nú sænsku ríkisstjórnina hvort hún ætli að sjá til þess að námsmenn frá hinum norrænu ríkjunum geti keppt á jafnræðisgrundvelli um skólavist í sænskum háskólum haustið 2010.

- Þetta hefur tekið allt of langan tíma. Nú verður sænska ríkisstjórnin að vakna. Ég óttast að nýju reglurnar muni hafa þau áhrif að aðrir norrænir námsmenn standi ekki jafnfætis sænskum námsmönnum þegar skráningar hefjast í haust. Brýnt er að breyta reglunum, aðöðrum kosti geta afleiðingarnar orðið alvarlegar fyrir marga norræna námsmenn, segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður og fulltrúi í flokkahópi Jafnaðarmanna í Norðurlandaráði.

Hún spurði sænska samstarfsráðherrann þegar á Norðurlandaráðsþingi haustið 2009 hvort sænska ríkisstjórnin áformaði að draga reglurnar til baka. Þá fékk hún það svar að verið væri að fjalla um málið í ríkisstjórn.

- Mun afgreiðsla málsins eiga sér stað nægilega tímanlega svo tryggt verði að þeir sem sækja um á haustönn 2010 geti keppt við sænska umsækjendur? spyr Sigríður Ingibjörg Ingadóttir í bréfi til sænsku ríkisstjórnarinnar.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Kristina Aaltonen
Sími +45 61 62 34 92
Tölvupóstur skraa@ft.dk

Tengt efni
  • Áfram ókeypis menntun á Norðurlöndunum (News Item)

    Norrænu menntamálaráðherrarnir undirrituðu samkomulag þann 23. apríl, sem tryggir námsmönnum á Norðurlöndunum aðgang að æðri menntun í öllum aðildarríkjum Norrænu ráðherranefndarinnar. Ísland fær undanþágu frá samkomulagi sem gert er um greiðslur milli landa, en tekur þátt í samstarfinu á jafnræðisgrundvelli.

  • Kemur Svíþjóð í veg fyrir frjálsan aðgang að menntun á Norðurlöndunum? (News Item)

    Sænsk stjórnvöld hafa sett kvóta á fjölda erlendra stúdenta. Ákvörðunin gengur gegn norrænum samningum um frjálsan aðgang að æðri menntun, að mati þingmannanna.