Lýst eftir skapandi frumkvöðlafyrirtækjum
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir viðskipti og iðnað. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 31. mars 2010.
Stækkaðu tengslanetið, lærðu og miðlaðu þekkingu þinni.
Við greiðum kostnaðinn.*
Hverjir geta sótt um?
- Lítil og meðalstór fyrirtæki (SME), þeirra á meðal einyrkjar sem leggja áherslu á sköpun og frumkvöðlastarfsemi,
- frumkvöðlasetur í háskólum, stofnunum o.fl.
- opinberir starfsmenn hjá stofnunum sem starfa að málefnum sem tengjast tengslanetum fyrirtækja,
- fulltrúar starfsgreinasamtaka.
Mikilvægt: Til að verkefnið komi til greina þurfa að þátttakendur að vera frá að minnsta kosti þremur landanna, þar á meðal verður að vera að minnsta kosti eitt norrænu ríkjanna og eitt Eystrasaltsríkjanna.
Tegundir verkefna sem geta hlotið styrk
- Verkefni sem stuðla að myndun tengslaneta og klasa, svo sem málþing og vinnusmiðjur
- Námsheimsóknir
- Starfsþjálfun
- Þjálfun á vinnustað
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 31. mars 2010.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi: http://www.norden.lv/en/main (undir “Grant Programs”).
* Áætlunin greiðir allt að 70% kostnaðar við ferðir, uppihald og uppbyggingu tengslaneta.
Del.icio.us
Facebook
Google Bookmarks
Twitter
Digg
