Document Actions

"Magauppreisn" kvenna

09/03 2005

Karlar eru jafnan á meðal þeirra sem fá verðlaun fyrir eldamennsku og eru tilaðir stjörnukokkar, en það eru konur sem sjá um eldamennskuna dags daglega - ýmist inn á heimilunum eða á matstofum fyrirtækja.
Camilla Plum og Katrine Klinken vilja breyta þessu. Þær hafa átt frumkvæði að því að stofna hreyfingu eða tengslanet sem kalla mætti "Magauppreisnina" og ætla að beita sér fyrir fjölbreyttara úrvali af hollustukosti og auka skilning fólks á því hvað hollur og góður matur er.

Skipuleggjendur málþings um matvöru, sem haldið var í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars bentu á mikilvægi þess
daglegri matreiðslu fylgdi hugsun um gæði, ábyrgðartilfinning,lýðræðisleg vinnubrögð og þátttaka.
600 konur voru saman komnar til að ræða vistvæna matvælaframleiðslu, heilbrigði og líffræðilega fjölbreytni.

Fulltrúar Norræna genabankans og genabankans fyrir húsdýr ræddu um líffræðilegan fjölbreytileika og Lise Lykke Steffensen ráðgjafi Norrænu ráðherranefndarinnar fjallaði um meðvitað val og gæði í neyslu hversdagsfæðu og að matvara ætti sitt upphaf í genabúskap og ræktunarumhverfi. Hún útskýrði m.a. að mikilvægasta verkefnið í varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni væri að nýta sér fjölbreytta genaauðlind Norðurlanda - bæði sem framleiðandi og neytandi.