Document Actions

Margar umsóknir um nafnbótina Norrænt orkusveitarfélag 2011

44 norræn sveitarfélög hafa tekið áskoruninni og sótt um að verða Norrænt orkusveitarfélag 2011. Norrænu orkumálaráðherrarnir ýttu samkeppninni um þessa heiðursnafnbót úr vör þann 25.október síðastliðinn til að styðja við og vekja athygli á aðgerðum sveitarfélaga á Norðurlöndum á sviði sjálfbærra orkulausna og loftslagsaðgerða. Sá fjöldi sveitarfélaga sem sótt hafa um sýnir að norræn sveitarfélög geta og vilja taka virkan þátt í að gera Norðurlönd að svæði sem er - í kolefnisjafnvægi eða óháð jarðefnaeldsneyti, svæði sem leggur áherslu á grænan hagvöxt.

24/01 2011
Stik til elbil

44 norræn sveitarfélög hafa tekið áskoruninni og sótt um að verða Norrænt orkusveitarfélag 2011.

Ljósmyndari
Sigurður Ólafsson/norden.org

Umsóknir verða metnar af dómnefndum í þjóðlöndunum sem hvert um sig tilnefnir þrjú sveitarfélög frá hverju landi eða sjálfstjórnarsvæði. Tilkynnt verður um tilnefningar um miðjan mars.

Til að koma til eiga kost á viðurkenningu sem Norrænt orkusveitarfélag 2011 verða sveita- og borgarstjórnir að kynna orkuverkefni, t.d. á sviði endurnýjanlegrar orku eða orkunýtingu, sem sýnir lögð er áherslu á brautryðjandi og nýskapandi lausnir sem skapa grænan hagvöxt og framþróun á svæðinu og stuðla jafnframt að því að uppfylla markmið um orkukerfi sem er CO2-hlutlaust eða óháð jarðefnaeldsneyti

Öll tilnefnd sveitarfélög fara áfram í keppninni og verða þau í vor metin af norrænni dómnefnd sem skipuð er fulltrúum allra ríkjanna. Tilkynnt verður um handhafa titilsins Norrænt orkusveitarfélag 2011 við hátíðlega athöfn í Finnlandi um miðjan júní.

Á vefsíðunni www.nordicenergymunicipality.org eru nánari upplýsingar um verkefnið, umsóknareyðublað o.fl. Vefsíðan verður fyrir fjölmargar norrænar orkulausnir og verða öll tilnefnd verkefni kynnt á síðunni.

Tengiliðir

Anne Sofie Bender
Sími +45 3396 0274
Tölvupóstur asb@norden.org

Tengt efni