Document Actions

Menningarmálaráðherrar Norðurlandanna að eyðileggja eigin árangur

Norrænu menningarmálaráðherrarninr ættu að viðurkenna tölvuleiki sem menningarafurð eins og kvikmyndir, sjónvarp og leikhús. Þess í stað eru ráðherrarnir komnir langleiðina með að eyðileggja árangurinn af einu best heppnaða verkefni seinni tíma: þróun norrænna tölvuleikja. Þannig hljómaði gagnrýnin frá menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi.

27/10 2009
Mogens Jensen

Mogens Jensen telur að styrkurinn eigi að standa jafnfætis öðrum opinberum styrkjaáætlunum eins og t.d. fyrir kvikmyndir.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Þingmenn frá öllum norrænu ríkjunum vara nú norrænu menningarmálaráðherrana við því að stöðva eitt best heppnaða norræna menningarverkefnið. Norðurlöndin eiga frekar að taka höndum saman um áframhaldandi opinbera styrki til þróunar norrænna tölvuleikja, segir í yfirlýsingu frá nefndinni.

„Norræn tölvuleikjaáætlunin sem ráðherrarnir áttu sjálfir frumkvæði að er með þeim áætlunum sem mestum vinsældum hefur náð, bæði meðal almennings og greinarinnar. Algjörlega rétt áhersla á núverandi og framtíðar miðlunarhæfileika barna og ungs fólks. Og áhersla sem vísar veginn jafnt í norrænu og alþjóðlegu samhengi. Við hvetjum því ráðherrana til að huga að framtíðinni og taka tölvuleiki með í norræna menningarstefnu fyrir fullt og allt”, segir Mogens Jensen.

Mogens Jensen telur að styrkir til tölvuleikjaþróunar eigi að standa jafnfætis öðrum opinberum styrkjum eins og til dæmis kvikmyndastyrkjum.

„Menningarmálaráðherrar sem bera ábyrgð verða að gera sér grein fyrir því að tekjur af tölvuleikjaiðnaði eru mun meiri en af kvikmyndaiðnaði og tölvuleikjaiðnaðurinn hefur fyrir löngu færst af frumstigi yfir í að vera menningarberandi miðill. Það er því óskiljanlegt, að ráðherrarnir skuli ekki koma auga á eigin velgengni, segir Mogen Jensen, formaður menningar- og menntamálanefndar Norðurlandaráðs.

Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs fjallar á fundi sínum í dag um tillögu um varanlega styrkjaáætlun fyrir norræna tölvuleiki. Nefndin leggur meðal annars til að ráðherrarnir komi á fót styrkjaáætlun svipaða Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum. Nefndin leggur áherslu á að innihald norrænna tölvuleikja eigi að stuðla að því að brjóta á bak aftur hina miklu yfirburði Bandaríkjamanna á markaðnum.

Velgengi norrænu tölvuleikjaáætlunarinnar sést á iðnaðinum sjálfum og fjölda umsókna til þróunar tölvuleikja. Árið 2009 bárust 170 umsóknir til norrænu tölvuleikjaáætlunarinnar.

„Það er óhætt að segja að áætlunin sé að drukkna í umsóknum. Það er að sjálfsögðu yfirþyrmandi en einnig gagnrýniverð staða. Fjármagn áætlunarinnar er einungis um tíundi hluta þess fjármagns sem hefðbundnir miðlar fá í styrki úr norrænum sjóðum. Það sýnir að minnsta kosti að þetta sérétt áhersla í menningarstefnu segir Monica Green, fulltrúi í menningar- og menntanefndinni.

Norræna tölvuleikjaáætlunin sem hófst árið 2006, er nú á sínu fjórða starfsári af sex. Markmið áætlunarinnar er að bæta aðgengi norrænna barna og ungs fólks að norrænum tölvuleikjum. Norrænu mennignarmálaráðherrarninr hafa ekki enn tekið endanlega ákvörðun um framtíð áætlunarinnar.

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Mogens Jensen
Formaður menningar- og menntamálanefndar Norðurðlandaráðs
Sími: +45 61 62 42 39

Monica Green
Fulltrúi í menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs
Sími: +46705304210