Document Actions

Menningarvettvangur fjallar um kynningarmál

Umræðuvettvangur Norrænu ráðherranefndarinnar, "Norrænn menningarvettvangur" verður næst haldinn í nóvember. Í þetta sinn verður athygli beint að kynningu og framsetningu á norrænni list og menningu.

09/11 2009

Viðburðurinn verður haldinn utan norrænna landamæra, nánar tiltekið í Berlín, borginni sem fyrir 20 árum síðan efldi samþættingu í Evrópusamstarfi og opnaði mörg landamæri - bæði landfræðileg og huglæg.

Umræðuvettvangurinn er liður í umræðu um hlutverk Norðurlanda í hnattvæddum heimi og til að undirstrika að list og menning séu mikilvægir og ímyndarskapandi þættir í alþjóðlegu samstarfi og samskiptum. Norrænu ríkin hafa hvert fyrir sig uppi áætlanir um að byggja upp ímynd. Samhliða aðgerðum þeirra fer fram norrænt samstarf um að kynna menningarsamstarf og listir og sýna Norðurlönd sem svæði með fjölbreytt, nýstárlegt og skapandi menningarlíf.

Margir hafa hag af menningu og listum - allt frá einstökum listamönnum til stjórnmálamanna sem starfa á vettvangi menningarinnar. Á fundinn í Berlín koma saman fulltrúar allrar "virðiskeðjunnar" og gegna þeir ólíkum hlutverkum við að kynna, koma á framfæri, búa til vörumerki, flytja út, keppa um og meta áhrif norrænnar listar og menningar. Samstarf byggist á samskiptum! Þess vegna mun þessi viðburður fyrst og fremst snúast um samskipti og umræður, miðlun á reynslu og skoðanaskiptum um hvað við á Norðurlöndum getum gert í sameiningu

Vettvangurinn hefst með samtali tveggja sagnfræðinga um sjálfsímynd. Á dagsrká eru erindi annarra alþjóðlegra sérfræðinga sem hafa markaðssett menningarafurðir og kynnt verða áhugaverð dæmi um aðgerðir bæði í löndunum og sameiginlega.

Mennignarvettvangurinn stendur yfir dagana 23.-24. nóvember 2009 í sameiginlegu sendiráði Norðurlanda í Berlín.

Norræna menningargáttin skipuleggur viðburðinn að frumkvæði Norrænu ráðherranefnarinnar og í samstarfi við Rösshka-safnið í Gautaborg og norrænu sendiráðin í Berlín.

Nýjustu upplýsingar um umræðuvettvanginn eru á på www.kulturkontaktnord.org

Tengiliðir

Jesper Schou-Knudsen, ráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni
Sími: +45 21 71 71 35
jsk@norden.org

Tengt efni
  • Menningarvettvangur

    Norræna ráðherranefndin heldur ráðstefnur, námstefnur og vinnustofur undir yfirskriftinni „Norrænn menningarvettvangur". Á Menningarvettvangi gefst Ráðherranefndinni og menningar- og listiðkendum tækifæri á að skiptast á hugmyndum og upplýsingum. Enn fremur gefst þar möguleiki á að fjalla um allar gerðir verkefna. Norræni menningarvettvangurinn er mikilvægasta upplýsingaboðleið Norrænu ráðherranefndarinnar til að tryggja þróun áætlana og nýsköpun á sviði menningar á Norðurlöndum. Nánari upplýsingar um viðburði á döfinni og viðburði sem haldnir hafa verið innan Menningarvettvangsins, eru á vefsíðu Norrænu menningargáttarinnar.