Document Actions

Mikill áhugi á nýrri fiskveiðistefnu ESB

Sú endurskoðun sem nú fer fram á fiskveiðistefnu ESB vekur mikla athygli. Áhugi manna kemur fram í viðbrögðum sem Framkvæmdastjórn ESB hefur fengið við svokallaðri grænbók um nýju fiskveiðistefnuna. ESB lagði tillögur sínar fram í apríl 2009 og leitaði eftir áliti stjórnvalda, hagsmunasamtaka og atvinnulífs.

27/01 2010
Fisk
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Nær 400 athugasemdir bæarust fyrir áramót við grænbókinni, sagði Paul Degnbol, fulltrúi Framkvæmdastjórnar ESB á námstefnu um fiskveiðar sem haldin var í tengslum við janúarfundi Norðurlandaráðs á miðvikudag.

20 athugasemdir við stefnuna komu frá Norðurlöndunum. Bæði Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin sendu inn athugasemdir. Almennt má segja að menn fagni endurskoðun þeirrar fiskveiðistefnu sem rekin hefur verið og menn telja nú hafa verið vanhugsaða. Nýja fiskveiðistefnan á meðal annars að koma í veg fyrir mikið brottkast á fiski og auka áhrif einstakra svæða, þ.e. að ákvarðanir verði teknar á lægra stigi en í Brussel.

Endurskoðuð fiskveiðistefna ESB á samkvæmt áætlun að taka gildi árið 2013.

Á námstefnunni á miðvikudag, sem umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaráðs stóð fyrir, voru norrænu þingmenn og fulltrúar ríkisstjórna auk fulltrúa Framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþingsins.

Norrænt fiskveiðisamstarf

Grænbók ESB