Document Actions

Mikill áhugi á sjálfbærri þróun

31/10 2004

Nær 30 blaðamenn, flestir frá Eystrasaltslöndunum og Rússlandi, sátu á sunnudag kynningarfund um sjálfbæra þróun, sem Norræna ráðherranefndin stóð fyrir í tengslum við þing Norðurlandaráðs.

Per Unckel framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar sagði frá aðalatriðunum í því pólitíska starfi sem unnið er til þess að stuðla að sjálfbærri þróun á Norðurlöndum og sjálfstjórnarsvæðunum.

Bo Lindroos deildarstjóri í umhverfis- og auðlindadeild Norrænu ráðherranefndarinnar talaði um nýja áætlun um sjálfbæra þróun og sagði frá því sem er búið að gera og því sem eftir er að gera til þess að uppfylla þær fjölmörgu alþjóðlegu samþykktir sem til eru á sviði umhverfismála og loftslagsbreytinga.

Nils Petter Karlsson ráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni talaði um félagslegu víddina í sjálfbærri þróun og lagði áherslu á að málefnið sé nýtt, þar sé skoðað hvernig hægt er að nota norræna velferðarmódelið annars staðar, meðal annars með því að gera samstarfssamninga.

Harry Pitkänen framkvæmdastjóri hjá Nefco sagði frá því hvernig nú sé hægt að taka þátt í fjármögnun verkefna í Norðvestur-Rússlandi og á Eystrasaltssvæðinu í gengum norrænt verkefni á sviði loftslagsbóta. Pitkänen sagði einnig frá því að trúlega verði hægt að fara af stað með önnur verkefni sem bæta umverfið um leið og Kyoto sáttmálinn taki gildi.

Lise Lykke Steffensen frá Norrænu ráðherranefndinni talaði um sjálfbærni og erfðarannsóknir - og vísaði til þess að Norðurlönd standa mjög framarlega á þessu sviði með genabanka bæði á Svalbarða og í Suður-Svíþjóð.

Ásmundur Guðjónsson sem er fiskveiðiráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni útskýrði hvernig sjálfbærar fiskveiðar geti skilað miklum hagnaði til þjóða sem byggja á fiskveiðum.